Hjartað í tónlistinni en höfuðið í læknisfræðinni
Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin.
Sveinn Rúnar á heima í Ungverjalandi en hefur dvalið hér á landi undanfarnar vikur. Lögin sem Sveinn Rúnar átti í keppninni í gær voru Hugarró í flutningi Magna Ásgeirssonar og Stund með þér í flutningi Rósu Birgittu Ísfeld. Að auki átt Sveinn Rúnar eitt lag til viðbótar í undankeppninni, Leyndarmál í flutningi Írisar Hólm.
„Ég vildi nota tímann á meðan ég væri hérna á Íslandi vel og gera eitthvað gagnlegt á daginn,“ segir Sveinn um vinnuna á Heilsugæslustöðinni í Árbæ en þar segir hann starfa frábært fólk. „Hjartað slær fyrir tónlistina en höfuðið nota ég fyrir læknisfræðina - og ég vil halda höfðinu vel við,“ segir Sveinn Rúnar og hlær.
Sveinn Rúnar er lærður klassískur píanóleikari en undanfarin ár hefur popptónlistin einnig verið honum hugleikin. Þá rekur hann hugbúnaðarfyrirtæki í Úkraínu, heimalandi konu sinnar Maríu Vygovska. Hann dvelur því mikið þar í landi og segist tala rússnesku reiprennandi.
Sér ákveðið mynstur
Hann hefur átt tíu lög í undakeppnum Evróvisjón hér heima undanfarin ár og hefur unnið keppnina í tvígang, fyrst árið 2004 með Heaven í flutningi Jónsa og síðar árið 2007 með Valentine Lost í flutningi Eiríks Haukssonar.
„Ég er farinn að sjá ákveðið mynstur,“ segir Sveinn Rúnar um þátttöku sína. „Árið 2003 tapaði ég, árið 2004 vann ég, árið 2006 tapaði ég en árið 2007 vann ég. Í ár tapa ég en það þýðir bara að ég kem dýrvitlaus til keppni að ári!“
Sveinn Rúnar viðurkennir að hann kunni illa að tapa en segir að í gær hafi öll lögin sjö verið mjög frambærileg og samkeppnin sérstaklega hörð.
„Ég er mjög ánægður með frammistöðu míns fólks, Magna og Rósu, en allir keppendur voru að standa sig mjög vel í gær. Ég óska vinkonu minni Gretu Salóme hjartanlega til hamingju með verðskuldaðan sigur og það er alveg á hreinu að við erum nú komin í klappliðið hennar fyrir keppnina úti.“
Úkraína óslípaður demantur
Sveinn Rúnar hefur búið í Austur-Evrópu meira og minna frá árinu 2004. Hann segist hafa heillast af þessum heimshluta endalega þegar hann kom til Kiev í Úkraínu árið 2005, einmitt í tengslum við Evróvisjón. „Úkraína er einstakt land, eins og óslípaður demantur. Þar er mögnuð náttúrufegurð og þar býr gott fólk.“
Strax á fimmtudag er förinni heitið til Kænugarðs. Hugbúnaðarfyrirtæki Sveins Rúnars er í miklum vexti og nú þarfnast það allrar athygli hans. Að minnsta kosti þar til nýtt Evróvisjón-lag kviknar í kolli hans.








