Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
Að minnsta kosti níu létust í snjóflóði í afskekktu fjallaþorpi í suðurhluta Kósóvó í gær. Björgunarmenn fundu fimm ára stúlku á lífi en foreldrar hennar og ættingjar eru meðal þeirra sem létust.
Heimili stúlkunnar grófst niður í snjóflóðinu en björgunarmenn heyrðu hana kalla á hjálp og farsíma hennar hringja. Eftir að stúlkan var grafin upp úr flóðinu var farið með hana á sjúkrahús.
Sjö hús grófust undir í flóðinu en aðeins var búið í tveimur þeirra.
Stúlkan, Asmira Reka, er ekki í lífshættu en hún var grafin í flóðinu í um tíu tíma áður en henni var bjargað.
Bæjarbúar hafa hjálpast að við að leita þeirra sem saknað er og höfðu friðargæsluliðar frá NATO verið kallaðir til leitarinnar. Þeir urðu þó frá að hverfa þar sem ekki var hægt að lenda þyrlu sem þeir voru í vegna veðurs.
Snjóþungur vetur hefur verið í Kósóvó og mikið frost.








