Mikið annríki á Læknavaktinni
Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir.
Samkvæmt upplýsingum frá Læknavaktinni getur biðtími á hefðbundnum degi verið frá tíu mínútum og upp í fjörutíu mínútur, en um helgina hefur hann verið yfir klukkustund að meðaltali.
Þegar rýnt er í aðsóknartölur fyrir síðustu viku má sjá að átta komur voru vegna inflúensu, en aðeins þrjár slíkar komur voru skráðar á síðustu þremur vikunum á undan. Ekkert tilvik var þá skráð vikurnar þar á undan.
Helsta orsök komu á læknavaktina var hins vegar hálsbólga, þá streptókokkasýking og miðeyrabólga. Þá fjölgaði komum vegna niðurgangs, maga- og garnabólgu töluvert milli vikna og voru um þrjátíu slík tilvik skráð í síðustu viku.
Komum í síðustu viku fækkaði rétt aðeins í heild en voru engu að síður töluvert yfir meðaltali síðustu tólf vikna.







