Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar
Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, eru meðal þeirra sem stofna Breiðfylkinguna. mbl.is/Ómar
„Mér finnst að það ætti að íhuga mjög vandlega. Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, eftir fyrri stofnfund nýju hreyfingarinnar sem gengur undir vinnuheitinu Breiðfylkingin. Hún var spurð að því hvort ekki kæmi til greina að nýju stjórnmálaöflin sem fram hafa komið að undanförnu gætu boðið fram saman.
Á fundinum sem haldinn var í Grasrótarmiðstöðinni við Brautarholt var kosið framkvæmdaráð til bráðabirgða og málefnanefndir. Boðað verður til seinni stofnfundar eftir um það bil mánuð, að sögn Margrétar.
Borgarahreyfingin, Hreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og einstaklingar sem sumir sátu í stjórnlagaráði standa að Breiðfylkingunni en hreyfingin er öllum opin.






