Veröld/Fólk
| AP
| 12.2.2012
| 19:40
Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
Mynd 1 af 8
George Clooney kemur að konunglegu óperunni í London þar sem BAFTA verðlaunin verða veitt í kvöld. AP
Bresku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin, BAFTA, verða veitt í kvöld. Rauði dregillinn var að venju stjörnum prýddur en fyrirfram er talið að myndirnar The Artist og Tinker Tailor Soldier Spy eigi eftir að verða mest áberandi í kvöld.
The Artist er tilnefnd til 12 verðlauna og Tinker Tailor til 11. Veðbankar telja að The Artist verði helsti vinningshafi kvöldsins.
BAFTA-verðlaunin þykja gefa góða vísbendingu um hverjir hljóti Óskarsverðlaunin.
George Clooney, Meryl Streep, Brad Pitt, Jessica Chastain, Penelope Cruz, Colin Firth og Judi Dench voru meðal þeirra sem gengu inn rauða dregilinn fyrr í kvöld.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






