Veröld/Fólk
| mbl
| 13.2.2012
| 7:17
| Uppfært
9:30
Adele fékk sex Grammy-verðlaun
Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin fyrir bæði plötu og lag ársins, „Rolling in the Deep“.
Bandaríska hljómsveitin Foo Fighters kom sömuleiðis sterk inn og vann til fimm verðlauna.
Hátíðin fór annars fram að vissu leyti í skugga sviplegs fráfalls söngkonunnar Whitney Houston í gær og var hennar minnst sérstaklega á hátíðinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






