Innlent
| Morgunblaðið
| 13.2.2012
| 5:30
Fimm frambjóðendur segja skilið við Y-lista
Fimm konur hyggjast segja sig formlega úr Y-lista Kópavogsbúa á fundi sem haldinn verður í dag, að sögn Ásdísar Ólafsdóttur, eins af stofnendum framboðsins.
Ásdís segir konurnar vera ósáttar við þá ákvörðun Rannveigar Ásgeirsdóttur, bæjarfulltrúa Y-listans, að mynda nýjan bæjarstjórnarmeirihluta í samvinnu með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum í Kópavogi. „Stóra bláa höndin kom þarna við og eyðilagði lítinn, fallegan og góðan lista,“ segir Ásdís.
Þrjár kvennanna sinntu nefndarstörfum á vegum bæjarins en að sögn Ásdísar hafa þær látið af þeim störfum sínum. Ein kvennanna, Hanna Dóra Stefánsdóttir, hefur raunar áður sagt formlega skilið við Y-listann en það gerði hún síðastliðið haust.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






