Hættur vegna eyðslu ríkisins

Frá Kúveit-borg. stækka

Frá Kúveit-borg. Reuters

Seðlabankastjóri Kúveit, Salem Abdulaziz Al-Sabah, hefur sagt af sér í mótmælaskyni gegn vaxandi eyðslu ríkisins en hann hefur gegnt embættinu undanfarinn aldarfjórðung að sögn fréttaveitunnar AFP.

Fram kemur í fréttinni að Al-Sabah hafi ítrekað á liðnum árum varað opinberlega við neikvæðri þróun í ríkisfjármálum landsins vegna of mikillar útgjaldaaukningar og hættunni sem það kunni að skapa fyrir efnahag þess.

Ríkissjóður Kúveit hefur undanfarin tólf ár samfellt skilað miklum afgangi, einkum vegna hás olíuverðs. Undanfarin sex ár hafa útgjöld ríkisins hins vegar þrefaldast, úr sem nemur 23 milljörðum dollara í yfir 70 milljarða, og þá einkum vegna launakostnaðar, niðurgreiðslna og styrkja samkvæmt opinberum tölum. Kúveiskir hagfræðingar hafa varað við því að ríkissjóður landsins muni ekki geta haldið áfram á þessari braut og þá sér í lagi ekki ef olíuverð lækkar verulega.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is