Reyndu að stela blöndunartækjum og hurðum

stækka

mbl.is/Hjörtur

Þrír menn voru teknir höndum af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan tvö í nótt í nýbyggingu við Boðaþing í Kópavogi. Voru þeir búnir að losa blöndunartæki, rafmagnsrofa og hurðir þegar lögreglumenn komu á vettvang og var eitthvað af þýfinu þegar komið út í bifreið sem þeir voru með skammt undan.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru mennirnir á aldrinum frá tvítugu til 55 ára og hafa allir komið áður við sögu lögreglu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is