Innlent
| Morgunblaðið
| 13.2.2012
| 5:30
Staðið í strætó
„Ég persónulega kæri mig ekki um að drengurinn minn standi í strætó á milli byggðarlaga og borgi svo fullt fargjald fyrir,“ segir Halldór Guðmundsson, leigubifreiðarstjóri.
Tólf ára sonur hans var fyrir helgi látinn standa um borð í lítilli 19 manna strætóbifreið á leiðinni frá Vík til Selfoss. Halldór hefur áhyggjur af þeirri stefnu Strætó að gera ráð fyrir standandi farþegum um borð í bifreiðum sem ferðast á þjóðveginum á Suðurlandi.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að Umferðarstofa hefur einnig lýst yfir áhyggjum sínum vegna þessara vinnubragða af hálfu Strætó og hvetur forsvarsmenn Strætó til þess að koma í veg fyrir að farþegar standi um borð í bifreiðum fyrirtækisins sem ekið er á þjóðveginum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






