Þurfa að vinna nær arnarhreiðrum

Unnið að vegagerð á Melanesi við Vestfjarðaveg nr. 60, skammt austan Skálaness. stækka

Unnið að vegagerð á Melanesi við Vestfjarðaveg nr. 60, skammt austan Skálaness. mbl.is/Helgi

Vegagerðin mun sækja um undanþágu til að geta unnið að vegagerð á Vestfjarðavegi á varptíma arnarins næstu þrjú til fjögur ár.

Ekki er heimilt að fara nær arnarhreiðrum en 500 metra, nema í almennri umferð, frá því í mars og fram í miðjan ágúst.

Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir, að Vegagerðin telji ekki hjá því komist að vinna á þessum tíma. Þröngt er um veginn á þessu svæði og þarf að fara nær hreiðrunum, 300 metra þar sem styst er, og ef örn verpir í þeim þremur hreiðrum sem þarna eru talin vera, verður sótt um undanþágu til umhverfisráðherra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is