Allt að 100 ný störf
„Miðja Suðurlands“ er ný verslunar- og þjónustumiðstöð sem á að rísa við Selfoss á sex hektara lóð við mót Biskupstungnabrautar og Suðurlandsvegar. Á milli 70 og 100 manns munu fá störf í nýju verslunar- og þjónustumiðstöðinni.
Um er að ræða stærstu þjónustumiðstöð í sögu Suðurlands en þarna skiptast leiðir, annars vegar suður með landinu, m.a. til Landeyjahafnar, og hins vegar austur í Grímsnesið, þar sem stærsta sumarhúsabyggð landsins er, og áfram í uppsveitir Árnessýslu, Gullfoss og Geysi, Þingvelli og framtíðartengingu við Vesturland, segir í frétt dfs.
Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélagsins Árborgar og Gatnamóta ehf. en Gatnamót hafa fengið vilyrði um úthlutun lóðarinnar og munu í samstarfi við Árborg skipuleggja svæðið. Gatnamót munu annast undirbúning og skipulag framkvæmda, fjármögnun, rekstur og útleigu byggingarinnar.
Vinna við hugmyndagerð og hönnun er langt á veg komin og fyrir liggja frumdrög að teikningum frá ARKÍS arkitektum. Í þeim drögum er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustumiðstöð sem jafnframt er ætlað að veita þjónustu þeim ferðamönnum sem fara um svæðið. Útfærslan gerir ráð fyrir 14-18 þúsund fermetra byggingu á sex hektara lóð og inni í þeirri tölu er gert ráð fyrir alhliða þjónustu fyrir farartæki svo sem rekstri stórrar bensínstöðvar, smurstöðvar, viðgerðaþjónustu og bílaþvottastöðvar.






