Jón Baldvin íhugar lögbann
Jón Baldvin Hannibalsson hefur farið fram á að fá afhent gögnin sem byggt er á í umfjöllun Nýs lífs, sem kemur út á morgun, um kynferðislegar bréfasendingar hans til unglingsstúlku. Þá krefst hann þess að fá að svara fyrir sig í sama blaði. Annars íhugar hann að fara fram á lögbann á dreifingu þess.
Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs lífs, staðfestir að Jón Baldvin hafi haft samband við sig og krafist þess að fá afhent öll gögn málsins. Jafnframt að hans hlið yrði birt í sama tölublaði. „Hann sagði að ef ekki yrði farið að þessum kröfum myndi hann skoða möguleikann á lögbanni,“ segir Þóra.
Tölublaðið er þegar komið úr prentun og fer í dreifingu á morgun. Yrði farið að kröfu Jóns Baldvins þýddi það því að farga þyrfti upplaginu og prenta annað með breytingum. Þóra segir að ritstjórn Nýs lífs haldi sínu striki. „Blaðið kemur út á morgun.“
Málið snýst um gömul bréf sem Jón Baldvin skrifaði unglingsstúlku sem tengdist honum fjölskylduböndum. Hún er um þrítugt í dag en var unglingur þegar hún fékk bréfin, að sögn Þóru. Stúlkan kærði Jón Baldvin á sínum tíma fyrir að hafa brotið á sér.






