Innlent
| mbl
| 22.2.2012
| 17:53
Lögðu hald á marijúna og e-töflur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 120 grömm af marijúana við húsleit í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í fyrradag en hluti þess var í söluumbúðum. Á sama stað var ennfremur lagt hald á 10 e-töflur.
Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar en þess má geta að rýmið hafði verið innréttað sem íbúðarhúsnæði, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






