Ný tískulína Kanye West sveipuð dulúð

Mynd 1 af 4
Fatahönnuðurinn og tónlistarmaðurinn Kanye West. Getty Images

Tónlistarstjarnan Kanye West sýndi fyrstu fatalínu sína á Tískuvikunni í París í október í fyrra en línan var afrakstur samstarfs hans og fatahönnuðarins Louise Goldin. Innan tískuheimsins velta menn nú vöngum yfir því hver hafi unnið með honum tískulínu hans númer tvö sem verður kynnt til sögunnar á Tískuvikunni í París 6. mars.

Orðrómur er á kreiki um að West hafi fengið hönnuðinn Mark Fast til liðs við sig að þessu sinni. Á Tískuvikunni í New York sást tónlistarstjarnan sitja í fremstu röð á tískusýningu Fasts þar sem hann kynnti fatalínu sína fyrir haust og vetur 2012.

Rennir það stoðum undir þá kenningu að West og Fast vinni nú saman á bak við tjöldin að annarri fatalínu tónlistarmannsins, að því er fram kemur á tískuvefnum Fashionista.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Smartland Mörtu Maríu — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is