Rússneskir fjölmiðlar beittir þrýstingi

Það styttist í forsetakosningar í Rússlandi. stækka

Það styttist í forsetakosningar í Rússlandi. Reuters

Sjálfstæðir fjölmiðlar í Rússlandi hafa kvartað yfir því að stjórnvöld þrengi að sér í aðdraganda forsetakosninganna sem fram fara í marsbyrjun. Fastlega er búist við því að Vladimír Pútín vinni kosningarnar.

Fréttamenn segjast hafa mætt margskonar mótstöðu af hálfu yfiralda, allt frá formlegum yfirheyrslum til þess að lokað sé fyrir útsendingu spjallþáttar þar sem leiðtogar mótmælenda áttu að koma fram.

Ritstjóri hins frjálslynda dagblaðs Novaya Gazeta, þar sem m.a. starfaði rannsóknarblaðakonan Anna Politkovskaya þegar hún var myrt, viðurkenndi nú í vikunni að hann gæti ekki greitt starfsfólki sínu laun eftir að leyniþjónusta ríkisins gerði rassíu í banka í eigu meðeiganda dagblaðsins, Alexanders Lebedevs. Sá á einnig breska dagblaðið The Independent.

„Yfirvöld beita afli til að þvinga okkur til að breyta ritstjórnarstefnu okkar. En þau hafa ekki sérstaklega djúpan skilning á sálfræði blaðamennskunnar,“ hefur Afp eftir ritstjóranum, Dmitry Muratov.

Fulltrúi frjálsar fjölmiðlunar hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, sagði fréttaveitunni Interfax í gær að rússnesk yfirvöld stunduðu „milda“ ritskoðun, sem fælist m.a. í því að ráðamenn mútuðu blaðamönnum eða beittu ofbeldi til að ógna þeim.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is