Sex mörk Kára dugðu ekki til - Dagur fagnaði

Kári Kristján Kristjánsson og Sverre Jakobsson voru báðir í eldlínunni með sínum liðum í kvöld. ... stækka

Kári Kristján Kristjánsson og Sverre Jakobsson voru báðir í eldlínunni með sínum liðum í kvöld. Kári skoraði sex mörk. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Allir þrír leikir kvöldsins í þýsku 1. deildinni í handknattleik voru Íslendingaslagir. Kári Kristján Kristjánsson og félagar í Wetzlar tóku á móti Füchse Berlín þar sem sem Dagur Sigurðsson er þjálfari og Alexander Petersson leikmaður en hann er meiddur og var því ekki með. Kári lék mjög vel í sóknarleik heimamanna og skoraði sex mörk sem dugðu þó ekki til sigurs því Dagur Sigurðsson gat fagnað þriggja marka sigri 29:26.

Staðan í hálfleik var 15:18 en eins og tölurnar bera með sér var lítið skorað í síðari hálfleik. Til að mynda var aðeins eitt mark skorað síðustu þrjár og hálfu mínútuna en Wetzlar tók leikhlé þegar tvær mínútur voru eftir og staðan 28:26. Það breytti engu því enn náðu leikmenn liðsins ekki að koma boltanum í netið.

Grosswallstadt með Sverre Jakobsson innanborðs tók á móti Rúnari Kárasyni og félögum í Bergischer. Heimamenn höfðu betur 24:23 en Sverre, varnartröll, var ekki á meðal markaskorara. Rúnar skoraði hinsvegar eitt mark fyrir gestina.

Fyrr í kvöld áttust svo við Íslendingaliðin Kiel og Löwen þar sem Kiel hafði betur. Nánar má lesa um það með því að smella hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is