Tveir vildu hækka vexti

Seðlabanki Íslands. stækka

Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ernir

Tveir nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greiddu atkvæði gegn tillögu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra um að halda stýrivöxtum óbreyttum á síðasta vaxtaákvörðunardegi. Vildu þeir hækka vextina um 0,25 prósentur. Þetta kemur fram í fundargerð peningastefnunefndarinnar sem birt var á vef Seðlabanka Íslands síðdegis.

Seðlabankastjóri lagði til að vöxtum bankans yrði haldið óbreyttum: innlánsvöxtum (vöxtum á viðskiptareikningum) í 3,75%, hámarksvöxtum á 28 daga innstæðubréfum í 4,5%, vöxtum af lánum gegn veði til sjö daga í 4,75% og daglánavöxtum í 5,75%.

„Þrír nefndarmenn studdu tillögu seðlabankastjóra en tveir nefndarmenn greiddu atkvæði gegn henni og kusu að vextir yrðu hækkaðir um 0,25 prósentur.

Þessir nefndarmenn álitu versnandi verðbólguhorfur og viðvarandi háar verðbólguvæntingar vega þyngra og töldu nauðsynlegt að snúa við lækkun raunvaxta frá síðasta fundi,“ segir í fundargerðinni.

Nefndarmenn voru sammála um að verri verðbólguhorfur væru meginrökin fyrir hækkun vaxta. Fram kom í umræðunum að þótt þróun verðbólgunnar til skamms tíma væri í samræmi við væntingar væri nú spáð að hún hjaðnaði heldur hægar á árinu 2012 og yrði, miðað við nokkurn veginn óbreytt gengi, heldur lengur fyrir ofan verðbólgumarkmið bankans en hafði verið spáð í nóvember.

Ennfremur væru verðbólguvæntingar ennþá háar og raunvextir bankans hefðu lækkað frá síðasta fundi. Í ljósi mikillar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga og að teknu tilliti til þess að verðbólguhorfur fyrir þetta ár hefðu versnað héldu því sumir nefndarmenn því fram að vaxtahækkun væri nauðsynleg á þessum tímapunkti.

Sjá nánar hér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is