Innlent
| Bæjarins besta
| 23.2.2012
| 13:26
| Uppfært
14:22
Draga hækkun til baka
Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að létta álögur á íbúa sveitarfélagsins í ljósi bættrar rekstrarniðurstöðu sem til komin er vegna niðurfellingar á láni sveitarfélagsins hjá Landsbanka Íslands vegna stofnfjárbréfakaupa og endurfjármögnunar á lánum sveitarfélagsins.
Þannig hefur verið samþykkt að draga til baka hækkun á leikskólagjöldum sem sett var á um áramótin og fella niður innritunargjald í félagsstarfi aldraðra. Áfram verður þó unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu og ítrasta aðhalds gætt í rekstri, eins og fram kemur í fundarbókun, segir á vef Bæjarins besta.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






