Fundu lík fimm ára stúlku

Kafarar fundu í nótt átta lík í flaki skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sem marar undan strönd ítölsku eyjarinnar Giglio. Þar á meðal er lík fimm ára gamallar stúlku.

Líkin fundust á fjórða dekki skipsins. Vonskuveður hefur verið á þessum slóðum og hefur það hamlað mjög aðgerðum á strandstað. Enn er sjö saknað og þeirra á meðal er faðir litlu stúlkunnar sem fannst í nótt.

Costa Concordia strandaði þann 13. janúar síðastliðinn og er gáleysi skipstjórans kennt um.  Staðfest hefur verið að 25 manns létu lífið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is