Innlent
| mbl
| 23.2.2012
| 12:00
Hundarnir finna dópið strax
Hallur Már - hallurmar@mbl.isUndanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar frá hruni og nú hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu engan hund til umráða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






