Hvað á litla prinsessan að heita?

Daníel Svíaprins sýnir hér stærð nýfæddrar dóttur sinnar á Karólínska sjúkrahúsinu í morgun. stækka

Daníel Svíaprins sýnir hér stærð nýfæddrar dóttur sinnar á Karólínska sjúkrahúsinu í morgun. AP

Svíar eru þegar farnir að velta fyrir sér nafni á nýfæddu prinsessuna, en í nótt fæddist Viktoríu krónprinsessu og Daníel eiginmanni hennar dóttir. Sænski veðbankinn Paf telur mestar líkur á að hún muni fá nafnið Alicia.

„Það er sígilt, en er líka vinsælasta stúlkunafnið í Svíþjóð,“ segir talsmaður Pif við Dagens Nyheter í dag. 

Veðbankinn Betsport veðjar aftur á móti á nafnið Désirée og það sama gera Betsson og Oddsbonus. Af öðrum nöfnum sem veðbankar telja miklar líkur á að stúlkan fái eru Christina, Ingrid og  Margaretha.

Aftur á móti hafa flestir veðjað á nöfnin Märta, Isabelle, Silvia og Maj.

Frétt mbl.is : Svíaprinsessa er fædd

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí


finnur.is