Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. stækka

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. mbl.is/Ómar

Fram kom í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í dag að gert væri ráð fyrir því að rammaáætlun um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða yrði tilbúin á næstu dögum. Málið væri á forræði iðnaðarráðherra og að unnið væri að því núna að fara yfir fjölda umsagna um málið sem hefðu borist.

Jóhanna sagði að þegar rammaáætlunin lægi fyrir færi hún til ríkisstjórnarinnar og þvínæst til þingflokka en hún var að svara fyrirspurn frá Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem spurði um stöðu þess máls og fleiri stórra mála sem til stæði að klára fyrir þinglok í vor.

Bjarni vakti meðal annars á það að samkvæmt þingmálaskrá sem lögð hefði verið fram í byrjun ársins hafi staðið til að rammaáætlunin yrði lögð fram í janúar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is