Rán framið á Akureyri

Spilakassar. stækka

Spilakassar. mbl.is/Sverrir

Rán var framið á spilastað Gullnámunnar við Geislagötu á Akureyri um hádegisbil í dag. Þetta staðfesti lögreglan á Akureyri og sagðist leita ræningjans en varðist að öðru leyti allra frétta af málinu. Lögreglumenn eru enn á vettvangi og fékkst ekki uppgefið hvort vopni hefði verið beitt. 

Nánar verður sagt frá málinu þegar frekari upplýsingar fást.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is