Minnka hlut sinn í Högum enn frekar

stækka

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka hf., hefur ákveðið að bjóða til sölu að lágmarki 10% eignarhlut í Högum hf. Eignabjarg er stærsti hluthafinn í Högum.

Stærð þess eignarhlutar sem seldur verður mun ráðast af verðtilboðum þeirra fjárfesta sem leitað verður til, en núverandi eignarhlutur Eignabjargs nemur 19,3% í Högum. Fjármálaeftirlitið hefur staðfest að það geri ekki athugasemd við að bankinn haldi eftir upp að 10% eignarhlut eftir söluna.

 Fjárfestingabankasvið Arion banka hefur umsjón með sölu hlutanna, sem mun fara fram í lokuðu útboði í samræmi við b-lið 1. mgr. 50. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Er ráð fyrir því gert að útboðinu ljúki fyrir 1. mars næstkomandi.

Sátt bankans við Samkeppniseftirlitið varðandi yfirtöku bankans á 95,7% hlutafjár í Högum er enn í gildi en samkvæmt samkomulagi við Samkeppniseftirlitið ber bankanum að ljúka sölu á hinum yfirtekna hlut fyrir 30. júní næstkomandi.

Almennu hlutafjárútboði í Haga hf. lauk desember er Eignabjarg seldi 30% af útgefnum hlut í Högum. Útboðsgengið í hlutafjárútboðinu var 13,5 krónur á hlut en lokaverð Haga í Kauphöllinni í dag er 17,1.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is