Hjúkrunarheimili til sölu

Eldri borgarar í Reykjavík. stækka

Eldri borgarar í Reykjavík.

Fyrrverandi hjúkrunarheimilið í Víðinesi á Kjalarnesi er auglýst til sölu í Morgunblaðinu í dag.

Um er að ræða hjúkrunarheimili skrifstofubyggingu eldhús ásamt tengibyggingum samtals 2.265,8 m² Brunabótamat húsanna er kr. 459.950.000,- og fasteigna og lóðamat er kr. 178.600.000,- samkv. Fasteignaskrá Íslands.

Húsin standa á samtals 16.703m² leigulóð. Húseignirnar eru til sýnis í samráði við Ríkiskaup en tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00 hinn 13. mars 2012 þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda er þess óska.

Hjúkrunarheimilinu var lokað árið 2010 og íbúar þess fluttir í nýtt hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut, Mörk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is