Reiði vegna lestarslyss
Mikil reiði er meðal aðstandenda þeirra sem létust í lestarslysi í úthverfi höfuðborgar Argentínu, Buenos Aires, á miðvikudag. 51 lést í slysinu og yfir sjö hundruð farþegar slösuðust. Lenti fólki saman við lögreglu á lestarstöðinni en aðstandendur vilja fá skýr svör um hvað olli slysinu.
En það eru ekki bara ættingjar sem eru ósáttir við fá svör við spurningum sínum því almenningur í Argentínu er langþreyttur á ástandi lestakerfisins. Óeirðarlögregla handtók nokkra á lestarstöðinni í gærkvöldi en æstur múgurinn kveikti í skiltum og öllu lauslegu á lestarstöðinni.
Farþegalestin var full af fólki þegar hún ók á um 20 km hraða inn á lestarstöðina. Sjónarvottar sem stóðu á lestarpallinum lýstu árekstrinum eins og sprengingu, hvellurinn hefði verið gríðarlegur og afleiðingarnar hryllilegar. Tugir manna sátu fastir í sundurkrömdum lestarvögnunum eftir áreksturinn.
Líklegt þykir að slysið muni hafa langan eftirmála fyrir dómstólum. Argentínska ríkið hefur sagst munu kæra fyrirtækið Trenes de Buenos Aires sem rekur lestarlínuna. Haft hefur verið eftir starfsmönnum lestarkerfisins að viðhald þess og endurnýjun hafi verið vanrækt síðan það var einkavætt.






