Slyddu spáð í kvöld
Það gengur í suðaustanátt með úrkomu víða á sunnan og vestanverðu landinu í kvöld, fyrst slyddu og síðan rigningu en snjókomu á fjallvegum. Skyggni getur orðið takmarkað um tíma í nótt og fyrramálið og einnig má gera ráð fyrir hálku á landinu, einkum þar sem er slydda, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir eru á Sandskeiði og á flestum leiðum á Suðurlandi. Þó er snjór á Mosfellsheiði og við Þingvallavatn.
Á Vesturlandi er snjór og éljagangur á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Hálka er annars á flestum leiðum
Víðast hvar á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir.
Hálka eða hálkublettir eru um norðanvert landið. Snjór er þó á Öxnadalsheiði, við Mývatn og á Mývatnsöræfum.
Á Austurlandi er hálka á öllum aðalleiðum en þó sumstaðar snjóþekja. Hálka er svo með ströndinni að Höfn en hálkublettir þaðan í Kvísker.
Þungatakmarkanir
Þungatakmarkanir eru nokkuð víða um land.






