Stærsta ferðasýning Norðurlanda

Mynd 1 af 6
Fjölmargir sækja sýninguna Ferie For Alle Ljósmynd Stefán Valberg

Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki eru meðal þátttakenda á stærstu ferðasýningu Norðurlanda, Ferie For Alle, sem nú stendur yfir í Danmörku.

Í fyrra komu 65.000 þúsund gestir á sýninguna sem stendur yfir í þrjá daga og stefnir allt í að gestirnir verði enn fleiri í ár, að sögn Stefáns Valbergs Ólafssonar, nemanda í viðburðarstjórnun í Háskólanum á Hólum en hann er á sýningunni.

Sýningin er haldin í Messecenter í Herning og þar kynna 1.064 ferðaskrifstofur og fyrirtæki þjónustu sína. Sýningarsvæðið er 60.000 m2 sem skiptist í 13 stóra sali þar sem ferðafyrirtæki kynntu þjónustu sína og boðið er upp á ýmiskonar afþreyingu.

VisitNoregur er að sögn Stefáns með stórt svæði á sýningunni þar sem norska ferðaþjónustan stóð sameiginlega að. Sýningin Ferie For Alle er að sögn Norðmanna mikilvægasta sýningin í ferðaþjónustu sem haldin er á Norðurlöndum.

 Að auki voru VisitSvíþjóð og Danmörk með sýningarbása en enginn bás var undir merkjum VisitÍsland, segir Stefán.

Þau íslensku fyrirtæki sem eru á sýningunni eru Icalandair, Islandsrejser sem er með höfuðstöðvar í Danmörku og rekin af Kolbrúnu Pálsdóttur og Iceland Express.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is