Innlent
| mbl
| 7.1.1999
| 18:24
Lögregluvörður tryggir skólastarf í Hagaskóla á morgun
Einar Magnússon skólastjóri Hagaskóla hefur neyðst til að grípa til þess ráðs að óska eftir nærveru lögreglu til að tryggja eðlilegt skólastarf í skólanum á morgun. Hefur orðið að hætta skólahaldi upp á hvern dag að undanförnu vegna sprengitilræða í skólanum. Þá gerðu stjórnsýslulög það að verkum að taka varð að nýju við sex nemendum sem vikið hafði verið úr skólanum í viku. Foreldrar þriggja þeirra andmæltu brottvikningunni kröftuglega.
„Ég hef bara ekki lagt í að halda uppi kennslu þegar verst lætur af því ég hef ekki getað tryggt öryggi nemenda minna með nægilegum hætti. Ég hef bara ekki þorað öðru og krakkarnir, sem eru náttúrulega saklausir að langmestum meirihluta eru bara hreinlega hræddir.
Málið er það að einhverjir eru að varpa mjög öflugum sprengjum inn í mannþröng. Þetta hefur gerst ítrekað og menn verða yfir sig skelkaðir. Það er þröngur hópur sem virðist hafa ógurlega gaman af þessu. Við höfum ekki getað neglt hann niður nema við erum búnir að finna út hver var að verki varðandi sprenginguna í dag.
Krakkarnir eru einfaldlega óttaslegnir og kennurum og starfsfólki skólans líst ekkert á þetta ástand og kærir sig ekkert um að mæta til vinnu meðan þetta er svona ótryggt," sagði Einar skólastjóri.
Skólastarf hefur raskast alla undanfarna daga vegna sprenginga. Ekki dugði til einn daginn þótt fenginn hefði verið fjöldi foreldra úr foreldrafélagi skólans til að vera á gangavakt. Allmargir nemendur báðust undan því að þurfa að mæta í skólann og ég gaf þeim leyfi því meðan ég get ekki tryggt öryggi þeirra þá verð ég að gera það.
Segir sprengingarnar meðvitað tilræði
Á þriðjudag óskaði Einar, í samvinnu við fræðsluyfirvöld Reykjavíkur, eftir lögreglurannsókn á sprengingunum. „Þetta eru það alvarlegar sprengjur að þær geta valdið stórskaða lendi þær í návígi við mannslíkama, því þær tæta í sundur málmtunnur og mölbrjóta stóreflis rúður. Ég hef nú gengið það langt að kalla þetta bara hrein tilræði. Þetta er enginn leikur, þetta er meðvitað að mínu viti og hrein tilræði við þá sem í kring eru," sagði Einar Magnússon.
Einar sagði að reynt yrði að halda uppi skólastarfi á morgun. Í því skyni var síðdegis verið að hringja út til foreldra til að fá þá til að vera á vakt í skólanum. En til þess að svo megi verða hefur Einar einnig kallað á lögreglu sér til aðstoðar. „Ég ætla að ganga í bekki enn einu sinni og reyna að höfða til ábyrgðarkenndar krakkanna. Nú bara gangi þetta ekki lengur. Þetta er orðin svo mikil truflun á skólastarfi."
Urðu að taka aftur við sex nemendum sem vikið var í viku
Eftir sprengingar á mánudag fundust sprengiefni í fórum sex nemenda. Í krafti grunnskólalaga greip Einar skólastjóri til þess ráðs að víkja þeim í viku úr skóla. Tilkynnti hann það heimilum viðkomandi. „Því var tekið á þremur tilvikum, mótmælt í þremur, þar af mjög ákveðið og þarf í tveimur mjög ákveðið. Svo ákveðið að það var kvartað undan þessari aðgerð minni við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Og þá kemur í ljós, að þó að grunnnskólalög heimili brottvikningu nemanda úr skóla í allt að viku að þá eru stjórnsýslulögin æðri grunnskólalögum.
Í hita leiksins hafði mér yfirsést það atriði, að ef ætlunin er að víkja nemanda í burtu lengur en í einn dag, verður að gera það með rökstuddir skriflegri greinargerð og geta þess jafnframt í bréfi að foreldri hafi svokallaðan andmælarétt. Þessi andmælaréttur getur verið allt að 15-30 dagar, að mér skilst, og náttúrulega alveg ófært að mínu viti að vinna við þessar aðstæður. Ég tel það alveg gagnslaust, en lagabókstafurinn blífur og ég varð að gjöra svo vel og taka krakkana til baka þótt mér þætti það súrt í broti," sagði Einar.
Auðvitað er þetta mjög leiðinlegt en eins og venjulega er um að ræða mjög lítinn hluta nemenda sem litar hópinn. Þetta er fjölmennasti unglingaskóli á landinu en að jafnaði veit ég aðeins eitthvað af svona 1,5 til 2% minna nemenda. Stærstur hlutinn er hið mesta fyrirmyndarfólk með heilbrigð áhugamál, tónllist, ballett, íþróttir og annað þess háttar. Gengur þarna í gegn okkur öllum til ánægju og gleði. En þessi fámenni hópur litar hins vegar gífurlega sterkt út frá sér," sagði Einar.
Höfðar til ábyrgðar foreldra
Ég vildi koma því skýrt á framfæri við foreldra að þeir gæti nú vel að því sem börn þeirra hafa meðferðis í töskum sínum og vhað þau eru yfirleitt að bjástra. Þannig að ekki sé verið að smíða eitthvað heimatilbúið og þess háttar. Auðvitað er ábyrgð foreldra talsverð og alger að mínu viti því að þetta er borið inn í skólann en ekki búið til í honum," sagði Einar Magnússon að lokum.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin