Ekki talið að um brot á útvarpslögum sé að ræða
Íslenska sjónvarpsfélagið hóf um mánaðamót útsendingar á nýrri rás sem kölluð er DMT. Hún er samansett úr tveimur erlendum sjónvarpsrásum, "Extreme Sports Channel", sem sýnir jaðaríþróttir tuttugu og fjórar stundir á sólarhring, og "The Adult Channel", sem sýnir erótík. Hlé er gert á útsendingu "Extreme Sports Channel" á miðnætti til að skjóta inn efni frá hinni rásinni, sem sýnt er í fjórar klukkustundir.
Í 8. gr. útvarpslaga er fjallað um að heimilt sé að endurvarpa erlendu sjónvarpsefni "enda sé um að ræða viðstöðulaust, óstytt og óbreytt endurvarp heildardagskrár sjónvarpsstöðva".
Fordæmi fyrir svona endurvarpi
Þór Jes Þórisson, framkvæmdastjóri breiðbandssviðs Landssímans, sagði að Landssíminn hefði áhuga á að bjóða fjölbreytt efni inn á Breiðvarpið og Íslenska sjónvarpsfélagið hefði farið fram á að koma með þessa samsettu stöð inn. Hann sagði að samsettar rásir væru til í mörgum útgáfum og mætti nefna að Fjölvarpið væri með "Cartoon Network" og "TCM", sem eina samsetta rás, en Breiðvarpið væri með þessar tvær rásir sem sitthvora 24 tíma rásina.Kjartan Gunnarsson, formaður útvarpsréttarnefndar, sagði að með nýjum útvarpslögum, sem tóku gildi á síðasta ári, hefði verið mörkuð sú stefna að leyfi þyrfti til útsendingar á útvarpi (sjónvarpi þar með talið) þegar dagskráin ætti uppruna sinn á Íslandi. Ríkisútvarpið og varnarliðsútvarpið væri þar undantekning en um þau gilda sérstök lög. Ekki þyrfti að sækja til útvarpsréttarnefndar um leyfi þegar um endurvarp á erlendri sjónvarpsrás væri að ræða.
Kjartan sagðist vera nokkuð undrandi á því að þetta tiltekna ákvæði 8. gr. væri enn að finna í útvarpslögum. Þetta ákvæði fæli í sér lýsingu á því hvað væri endurvarp. Útsending sem ekki passaði við þá lýsingu sem væri að finna í lagagreininni væri ekki endurvarp. Kjartan tók fram að meðan útvarpsréttarnefnd hefði haft með endurvarp sjónvarpsstöðva að gera hefði nefndin ekki gert athugasemd við þó að tvær erlendar sjónvarpsrásir væru sendar út á einni rás, sbr. "Cartoon Network" og "TCM".
Á íslenskt efni að hafa forgang að sjónvarpsrásum?
Sjónvarpsstöðvum ber að sækja um leyfi til að endurvarpa erlendu sjónvarpsefni til Póst- og fjarskiptastofnunar. Gústav Arnar, framkvæmdastjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, vísaði á útvarpsréttarnefnd þegar hann var spurður um hvort hann teldi að útsending á DMT væri í samræmi við útvarpslög. Hann sagðist vera þeirrar skoðunar að þegar um væri að ræða hugsanlegt brot á útvarpslögum væri það útvarpsréttarnefndar að svara. Ef útvarpsréttarnefnd væri ekki ljóst hvaða eftirlitshlutverk nefndin ætti að hafa með endurvarpi á erlendu sjónvarpsefni bæri menntamálaráðuneytinu að taka á því. Afskipti Póst- og fjarskiptastofnunar væru einvörðungu tæknilegs eðlis.Gústav sagði að áður en nýju útvarpslögin tóku gildi hefði útvarpsréttarnefnd fjallað um dagskrá sjónvarpsstöða og í framhaldi af því hefði því verið beint til Póst- og fjarskiptastofnunar að finna rásir fyrir stöðvarnar. "Það var stefna útvarpsréttarnefndar að endurvarp á óstyttu erlendu sjónvarpsefni ætti ekki að vera á þessum hefðbundnu sjónvarpsrásum, sem er takmörkuð auðlind. Eftir þessa breytingu á lögunum er nauðsynlegt að við förum að huga að því, í samráði við samgönguráðuneytið, hverji eiga að fá rásir til að senda út. Hvort t.d. íslenskar dagskrárstöðvar eiga að hafa forgang að rásunum. Það er engar reglur um það að finna í fjarskiptalögum."
Fram kom hjá Þór Jes Þórissyni í Morgunblaðinu í gær að breiðbandskerfi í fjölbýlishúsum tækju almennt ekki við nema 40 rásum og því væru takmörk fyrir því hvað hægt væri að koma mörgum sjónvarpsrásum fyrir á breiðbandinu.
Kjartan Gunnarsson sagðist vera undrandi á þessum ummælum. Því hefði verið haldið fram við útvarpsréttarnefnd að breiðbandið gæti auðveldlega tekið við 400 sjónvarpsrásum. Hann sagðist því hafa litið svo á að menn vildu beina sem flestum sjónvarpsstöðvum inn á breiðbandið.
Útvarpsréttarnefnd hefur ekki afskipti af útsendingu á klámi
Hreggviður Jónsson, framkvæmdastjóri Íslenska útvarpsfélagsins, sagði að á sínum tíma hefði Íslenska útvarpsfélagið sótt um leyfi til útvarpsréttarnefndar til að endurvarpa sjónvarpsstöðinni "The Adult Channel", en umsókninni hefði verið hafnað með þeim rökum að stöðin sýndi klámefni. Núverandi stjórnendur ÍÚ hefðu ekki viljað taka þá áhættu að fá á sig dóm fyrir dreifingu á klámi. Félagið myndi þess vegna fylgjast með því hvaða viðtökur þessi nýja rás fengi.Í 5. gr. útvarpslaga segir að útvarpsréttarnefnd geti stöðvað tímabundið sjónvarpsútsendingar frá öðru EES-ríki ef útsendingin telst geta haft "alvarleg skaðleg áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðilegan þroska barna, einkum dagskrárefni sem felur í sér klám eða tilefnislaust ofbeldi".
Kjartan Gunnarsson sagði að útvarpsréttarnefnd myndi ekki hafa afskipti af útsendingu Íslenska sjónvarpsfélagsins á "The Adult Channel". Hann vísaði þar til breytinga sem gerðar voru á útvarpslögum á síðasta ári. Það væri lögreglu að meta hvort útsendingin væri í samræmi við lög.




































