Starfsmönnum á landsbyggðinni fjölgar um sex

Útvarpsráð samþykkti á fundi sínum í gær að leggja til við útvarpsstjóra að tillögu starfshóps um flutning Rásar 2 að stórum hluta til Akureyrar verði hrint í framkvæmd.

"Við fögnum þessari tillögu heilshugar.

Útvarpsráð hefur nú samþykkt þessa tillögu og lagt fyrir útvarpsstjóra, þannig að þetta er lokapunkturinn í ferlinu," sagði Sigurður Þór Salvarsson, deildarstjóri Ríkisútvarpsins á Akureyri.

Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri skipaði starfshópinn í nóvember á síðasta ári í kjölfar hugmynda Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra um að flytja starfsemi Rásar 2 til Akureyrar og gera hana að miðstöð svæðisstöðva. Tillögur starfshópsins voru kynntar nýlega, en í þeim fólst m.a. að Rás 2 yrði framvegis stjórnað frá Akureyri og sérstakur yfirmaður ráðinn auk þess sem lagt var til að dagskrárgerðarmenn verði ráðnir til starfa á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði. Á fundi útvarpsráðs í gær kom fram í bókun meirihlutans, þ.e. fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, að með því að framkvæma tillögu starfshópsins myndi Ríkisútvarpið styrkja stöðu sína enn betur sem útvarp allra landsmanna.

Minnihlutinn telur flutning ekki tímabæran

Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs sátu hjá við atkvæðagreiðslu um tillöguna. Fulltrúarnir lögðu fram hvor sína bókunina á fundinum þar sem fram kemur að þeir styðji ekki tillögu útvarpsráðs, m.a. vegna þess að ýmsar upplýsingar skorti og stefnumótun varðandi þessar hugmyndir. Í bókun Marðar Árnasonar kemur m.a. fram að nefndinni hafi tekist að fara kurteislega í kringum þokukennda ósk menntamálaráðherra um að flytja Rás 2 til Akureyrar og gera hana að miðstöð svæðisútvarpa, "en bókstaflega jafngildir þessi hugdetta afnámi Rásar 2".

Sigurður Þór Salvarsson sagði að gert væri ráð fyrir að störfum úti á landsbyggðinni myndi fjölga um allt að sex, að líkindum yrði bætt við einum starfsmanni á Ísafirði og öðrum á Egilsstöðum svo og 3-4 á Akureyri. Nú starfa sex manns við Ríkisútvarpið á Akureyri og eru tveimur færri en þeir voru síðastliðið haust. "Störfum hér hefur fækkað um fjögur frá árinu 1996, þannig að segja má að við náum okkar fyrri styrk að nýju," sagði Sigurður Þór.

Hann sagði að starfsmenn svæðisstöðvanna myndu koma sterkari inn í dagskrá Rásar 2 en áður, m.a. í morgun- og síðdegisþáttum.

Standa þarf rétt að breytingum

Jón Ásgeir Sigurðsson fulltrúi starfsmanna Útvarpsins í framkvæmdastjórn Ríkisútvarpsins sagði að starfsmenn væru ekki á móti breytingum, en standa þyrfti rétt að málum þegar fyrirhugað væri að ráðast í breytingar. Athugasemdir við tillögu starfshópsins frá Jóni Ásgeiri voru lagðar fram á fundi útvarpsráðs í gær. Starfsmenn Ríkisútvarpsins áttu fund með útvarpsstjóra og formanni starfshópsins þegar niðurstaða hans lá fyrir, en að sögn Jóns Ásgeirs þótti mönnum svör sem á þeim fundi fengust frekar rýr og margt væri óljóst.

Jón Ásgeir sagði að lagt væri til að tillaga starfshópsins yrði endurskoðuð. Hann vill að forsendur breytinga verði byggðar á ítarlegri skoðanakönnun meðal hlustenda Ríkisútvarpsins. "Við viljum sjá hvernig landið liggur meðal hlustenda," sagði Jón Ásgeir.

Þá vilja starfsmenn að ákvörðun um breytingar á Rás 2 verði frestað þar til fjárlagaforsendur liggja fyrir, en áætlað er að það verði í marsmánuði næstkomandi. Þá nefnir Jón Ásgeir að áður en ráðist verði í slíkar breytingar verði rætt um framtíð Sjónvarps og Rásar 1 og útbúið nýtt skipurit fyrir Ríkisútvarpið allt.

Starfsemi Ríkisútvarpsins hefur verið við Fjölnisgötu í Glerárhverfi fram til þessa en nú eru menn farnir að hugsa sér til hreyfings. Húsnæði við Kaupvangsstræti 1 í miðbæ Akureyrar hefur verið skoðað í því skyni. Það er um 300 fermetrar að stærð, en það húsnæði sem útvarpið nú er í er helmingi stærra. Það er hins vegar ekki nýtt að fullu.

Starfsemin verður flutt í miðbæ Akureyrar

"Staðsetning útvarpsins í bænum hefur ekki verið nægilega góð. Við viljum vera sýnilegri og þá mun aðgengi almennings verða betra ef við erum í miðbænum auk þess sem mun styttra er í stofnanir og stjórnsýslu bæjarins þaðan. Með flutningi í miðbæinn getum við þannig slegið margar flugur í einu höggi" sagði Sigurður Þór.

Geta má þess að lokum að skrifstofa DV verður flutt í þetta sama hús innan tíðar, en þar er fyrir skrifstofa Morgunblaðsins á Akureyri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Jóhanna fundaði með Füle

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
Í gær, 19:49 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Stefan Füle, framkvæmdastjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, í Stjórnarráðinu. Meginefni fundarins var að ræða stöðu aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu tjaldvagn
Ægisvagn, árgerð 2006, notaður fyrst 2007 og sama og ekkert eftir það. Yfirbreið...
Coleman Redwood
Til sölu Coleman Redwood fellihýsi árg. 2000. Skoðað 2013. Fortjald, ísskápur,...
Kertastjakar til sölu
Tveir leir kertastjakar eftir listakonuna Rannveigu til sölu. Tilboð óskast. U...
Íbúð til leigu í London
Falleg íbúð til leigu í hjarta Stoke Newington í Austur London. Rúmgott svefnher...
 
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...