Leitast var við að sýna nærgætni
Hún sagði að farið hefði verið yfir málið með starfsmönnum á Akureyri, bæði þeim sem sagt var upp sem og öðrum. "Uppsagnirnar voru undirbúnar og teknar af yfirveguðu ráði. Þær eru hluti af almennri rekstrarhagræðingu sem á sér nú stað innan fyrirtækisins, en hjá því starfa um 1.300 manns," sagði Heiðrún.
Af þeim 8 starfsmönnum sem sagt var upp á Akureyri störfuðu 5 í húslagnadeild. Þau verkefni hafa að sögn Heiðrúnar verið færð til sjálfstætt starfandi verktaka í bænum og að því leyti væri Síminn að styrkja atvinnulífið í bænum. Önnur verkefni hafi verið lögð niður.
Litið til fleiri þátta en starfsaldurs
"Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að fjalla um málefni einstakra starfsmanna opinberlega og því ekki unnt að fjalla um hvers vegna þessum starfsmönnum var sagt upp, en sumir höfðu langan starfsaldur að baki hjá fyrirtækinu. Í mörgum tilvikum er litið til starfsaldurs, en í þessu tilviki var litið til fleiri þátta, s.s. hvaða verkefni var verið að leggja niður, hverjir sinntu þeim verkefnum og auk þess var litið til annarra þátta," sagði Heiðrún. Í því sambandi benti hún á að öllum starfsmönnum húslagnadeildar hefði verið sagt upp, en vonir stæðu til að einhverjir þeirra fengju starf hjá því fyrirtæki sem tæki við verkefnum deildarinnar. "Það er eðlilegt að uppsagnir komi sterkt við starfsmenn og veki upp hörð viðbrögð, en þau eru þó ekki óeðlilegur þáttur í rekstri allra fyrirtækja og þá ekki síst fyrirtækja sem ganga í gegnum breytingar," sagði Heiðrún. Fyrirtæki á samkeppnismarkaði yrðu að leita hagræðingar og aðlagast breyttu umhverfi, það væri forsenda þess að unnt væri að skapa ný tækifæri og að fyrirtækin næðu að vaxa og dafna.Heiðrún benti á að við lokun húslagnadeildar Símans yrði til laust rými á 2. hæð húsnæðisins á Akureyri og væri til skoðunar hvort unnt væri að efla starfsemina norðan heiða frekar. Hún sagði að þrátt fyrir þessa fækkun nú hefði starfsfólki Símans fjölgað um 25 á fjórum árum.




































