Innlent
| Morgunblaðið
| 22.6.2002
| 16:49
Klám og vændi eru mismunandi myndir af því sama
„Mér líst því miður ekki nógu vel á skýrsluna og ég varð fyrir miklum vonbrigðum,“ segir Rúna Jónsdóttir, fræðslu- og kynningarfulltrúi Stígamóta, um skýrslu nefndar um viðbrögð við klámi og vændi sem kynnt var í fyrradag. Hún segir þó jákvætt að nefndin leggi til að ekki verði lengur refsivert að stunda vændi til framfærslu en þetta hafi verið löngu tímabær leiðrétting á miklu ranglæti og dugi hvergi nærri til.
Rúna hefur margt við skýrsluna að athuga. Hún segir það undarlegtað skilja á milli vændis og kláms og leyfa hið síðarnefnda. Það sé samdóma álit þeirra sem starfa innan Stígamóta, samtakanna Nordnet sem berjast gegn klámi og vændi og kynjafræðinga á Norðurlöndunum, að klám og vændi séu mismunandi myndir af hinu sama, kynferðisofbeldi.
„Mér finnst ekki rökrétt að skilja þarna á milli. Annars vegar vill nefndin leyfa klám, án þess að spyrja við hvaða aðstæður konurnar sem seldar eru í klámiðnaðinum búa. Hins vegar viðurkennir nefndin að þær konur sem stunda vændi á Íslandi séu fórnarlömb ýmiss konar aðstæðna,“ segir Rúna. Hún undrast þær yfirlýsingar nefndarinnar að ekki hafi verið sýnt fram á skaðsemi kláms. Ekkert hafi verið nefnt um skaðsemi kláms fyrir þær konur sem nýttar eru í þessum iðnaði. „Það eru oft sömu konurnar sem eru í klámiðnaðinum og vændisiðnaðinum. Það eru engin skýr mörk þarna á milli,“ segir hún. „Mér finnst líka merkilegt að ef nefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að konur í vændi séu fórnarlömb aðstæðna, að nefndin skuli þá ekki halda röksemdafærslunni áfram og athuga hver beri ábyrgðina.“ Í skýrslunni sé ekki getið um að þær sem stunda vændi séu fórnarlömb þeirra sem kaupa þær og selja. Engar tillögur séu settar fram sem varða kaupendurna sem haldi uppi klám- og vændisiðnaðinum.
Lög eru skilaboð
til samfélagsins
Hún saknar þess ennfremur að nefndin skyldi ekki hafa þor til þess að fara að dæmi Svía og banna kaup á kynlífsþjónustu. Aðspurð um þau rök nefndarinnar að með því að banna kaup á vændi yrði erfitt að fá kaupendurna til þess að bera vitni bendir Rúna á að lögin hafi víðtækara gildi en að refsa einstaklingum sem brjóta þau. „Lög eru skilaboð til samfélagsins um hvað er rétt og rangt,“ segir Rúna. Vændi hafi verið og sé enn refsivert en hún viti ekki til þess að það hafi hindrað konur í að leita sér hjálpar. Annar tvískinnungur í niðurstöðum nefndarinnar sé sá að konur verði ekki sekar fyrir lögum ef þær selja sig, svo framarlega sem þær gera það ekki á almannafæri. Þá vilji nefndin að nektarstaðir verði ekki of þétt saman, ekki í miðbæjum o.s.frv. Rúna segir að þetta bendi til þess að nefndin telji að vændi og nektarstaðir séu í lagi, svo lengi sem slíkt sé ekki sýnilegt. Þetta séu kolröng skilaboð. Hún fagnar því á hinn bóginn að nefndin hafi lagt til að einkadans verði bannaður.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




































