Bændasamtökin telja birgðir vera of miklar

Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að útflutningshlutfall kindakjöts skuli vera 25% á tímabilinu 1. september til 31. október í komandi sláturtíð en Bændasamtök Íslands höfðu hins vegar lagt til við ráðherra að hlutfallið yrði 28% enda telja þau birgðir vera of miklar.

Landbúnaðarráðherra leggur hins vegar áherslu á að fremur verði brugðist við vaxandi birgðasöfnun með söluátaki innanlands. Þá vísar landbúnaðarráðherra til þess að á næstu dögum muni hefjast viðræður um endurskoðun gildandi sauðfjársamnings þar sem m.a. fyrirkomulag útflutnings hljóti að koma til skoðunar.

Fyrsta sinn sem ráðherra fer ekki að tillögum bænda

Ari Teitsson, formaður Bændasamtakanna, segir að í samræmi við lög leggi samtökin fyrir ráðherra tillögu um útflutningshlutfall en það sé ráðherra að taka endanlega ákvörðun. "Þetta hefur gilt frá 1995, ef ég man rétt, og ráðherra hefur alltaf farið að tillögum Bændasamtakanna fyrr en nú í haust. Hver prósenta er líklega á bilinu 60 til 70 tonn þannig að ráðherra telur útflutningsþörfina vera um 200 tonnum minni en við."

Ari segir bændur fá á bilinu 160 til 190 krónur fyrir lambakjöt til útflutnings en 250 til 300 á innanlandsmarkaði. "Tillaga okkar um 28% byggist á því að birgðir eru of miklar og það er dýrt að liggja með birgðir. Það eru einkum þrjár ástæður fyrir of miklum birgðum. Í fyrsta lagi er salan aðeins minni en við reiknuðum með, í öðru lagi erum við enn með birgðir sem mynduðust vegna of lágs útflutningshlutfalls á árinu 2000 og í þriðja lagi átti Kjötumboðið að flytja út 170 tonn sem þeir ekki gerðu vegna gjaldþrots heldur seldu á innanlandsmarkaði. Við teljum óskynsamlegt að velta birgðum á undan okkur," segir Ari.

Aðspurður segist Ari reikna með að birgðir um mánaðamótin ágúst-september í ár séu um 700 til 800 tonn en hæfilegar birgðir að mati þeirra sem slátra og selja séu einhvers staðar í kringum 400 tonn.

"Það má alltaf gera betur í sölumálum en það er mjög hörð samkeppni á markaðnum. Það hefur verið mikið framboð á svínakjöti á lágu verði og síðan er framboð á kjúklingum að aukast aftur og við sjáum það fyrir okkur að kjötmarkaðurinn verði mjög mettaður á næstu mánuðum. Það er staðreynd sem blasir við en það breytir ekki því að það þarf að halda lambakjötinu fram."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Jóhanna fundaði með Füle

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
Í gær, 19:49 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Stefan Füle, framkvæmdastjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, í Stjórnarráðinu. Meginefni fundarins var að ræða stöðu aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GLUGGA,HURÐASMÍÐI OG MÓTAUPPSLÁTTUR.
Smíða glugga,hurðir og opnanlegaglugga í gömul og ný hús:Allt unnið úr fyrstaflo...
**Toyota Avensis 1999**
Toyota Avensis árgerð 5/1999. Einn eigandi frá upphafi. Ekinn 248.000 km. Bí...
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga  Sjá nánar á...
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri með korks...
 
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...