80 sveitabæir ná ekki útsendingum Ríkisútvarpsins
Verið var að ræða fyrirspurn frá Kristjáni L. Möller, þingmanni Samfylkingarinnar, um hvort áætlað sé að bæta móttökuskilyrði Ríkisútvarpsins á Raufarhöfn og Kópaskeri. Tómas Ingi vitnaði í svar Ríkisútvarpsins um að rafmagnstruflanir á Langanesi hefðu ekki haft áhrif á sjónvarpsútsendingar á Raufarhöfn. Bilun sem fannst í loftneti sendis hefði verið lagfærð. Á Kópaskeri kæmu sendingar útvarps og sjónvarps frá sendistöð í Auðbjargarstaðabrekku og færu sendingarnar um langan veg yfir sjó sem stundum gæti valdið breytingum á skilyrðum. Ákveðið hafi verið að setja upp sendi fyrir sjónvarp og væri gert ráð fyrir að hann yrði kominn upp fyrir jól. Þá væri áformað að setja upp senda fyrir bæði Rás 1 og Rás 2 á báðum stöðum en ekki væri ákveðið hvenær.
Tómas Ingi sagði að starfsmenn Ríkisútvarpsins og Landssímans hefðu mælt útsendingar Sjónvarpsins á Raufarhöfn og niðurstaðan væri sú að með góðum móttökubúnaði væri hægt að ná góðri mynd. Athuganir hefðu sýnt, að í nokkrum húsum voru ekki rétt loftnet eða búnaðurinn lélegur. Mælingar hefðu hins vegar leitt í ljós að ekki væru kjörskilyrði fyrir sendingar útvarpsins fyrir ferðatæki en góðar viðtökur mætti fá með útiloftneti. Þá væru góð skilyrði fyrir bílútvörp á svæðinu.
Þá kom fram í svari Ríkisútvarpsins að 80 sveitabæir byggju við léleg eða engin skilyrði til að ná sendingum sjónvarps og útvarps og kostnaður við úrbætur væri áætlaður um 240 milljónir króna. Á verkefnalista Ríkisútvarpsins væri styrking útsendinga útvarps eða sjónvarps í stærri sveitarfélögum eða byggðakjörnum með nýjum sendistöðvum, svo sem á Akranesi og Grenivík.
Gísli S. Einarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að móttökuskilyrði hefðu á undanförnum árum batnað víða, ekki síst vegna mikilla kvartana. Þó væri enn svo á mörgum svæðum í nýju Norðvesturkjördæmi að hvorki NRT- og GSM-símasamband né móttökuskilyrði væru fyrir útvarp.
Kristján Möller sagði í lok umræðunnar að nú væri sá tími ársins þegar jólasveinar kæmu til byggða og hann vonaðist svo sannarlega að íbúar Raufarhafnar og Kópaskers fái gjafir frá einhverjum þeirra og sjónvarps- og útvarpsskilyrði á þessum stöðum verði komin í gott lag fyrir jól „þannig að horfa megi og hlusta á ágæta dagskrá Ríkisútvarpsins án þess að þurfa að sitja úti í bíl á aðfangadag," sagði Kristján.




































