Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur í nýtt og endurbætt húsnæði
Eftir gagngerðar breytingar á gamla sjúkrahúsinu á Hólmavík verður hin endurbyggða og nýja Heilbrigðisstofnun nú um 850 fm að stærð með nýrri viðbyggingu á þremur hæðum. Afar brýnt þótti að ráðast í umbætur á húsnæðinu á Hólmavík sem var úr sér gengið og langt frá því að svara kröfum sem gerðar eru til hjúkrunarheimila.
Heilbrigðisstofnunin hefur nú tekið stakkaskiptum og er allur aðbúnaður vistamanna og starfsmanna gjörbreyttur. Litlum tveggja manna stofum var t.d. breytt í eins manns stofur, komið var fyrir tveimur litlum íbúðum á fyrstu hæð, lyfta sett í viðbygginguna, komið fyrir tveimur sjúkrastofum og rúmgóðri borð- og setustofu. Í kjallara er líkams- og iðjuþjálfun ásamt þvottahúsi og aðstöðu til frágangs á líni. Kostnaðurinn við endurbyggingu Heilbrigðisstofnunarinnar á Hólmavík er rúmar 126 milljónir króna á verðlagi ársins 2001. Ríkissjóður, Framkvæmdasjóður aldraðra og fjórir hreppar í Strandasýslu standa straum af kostnaði. Hrepparnir eru Broddanes-, Hólmavíkur-, Kaldrananes- og Árneshreppur.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tók húsnæðið formlega í notkun. Alþingismenn, sveitarstjórnarmenn í Strandasýslu, embættismenn heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og fjölmargir aðrir gestir voru viðstaddir athöfnina.
Við athöfnina í dag flutti Jón Kristjánsson, heilbrigðismálaráðherra ávarp, Sigríður Óladóttir, sóknarprestur fór með blessunarorð, Haraldur V.A. Jónsson, oddviti Hólmavíkurhrepps og héraðsnefndar flutti ávarp, Jóhann Björn Arngrímsson, framkvæmdastjóri rakti sögu framkvæmda og Kvennakórinn Norðurljós söng nokkur lög. Að athöfn lokinni vargestum boðið til kaffisamsætis.
Innlent »
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
- Mótmæla með götulistaverkum
- Málflutningur hefst 18. september
- Tillaga Vigdísar felld
- Leiðin um Hólssand fær
- Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta
- Glíma við áhrif jarðhitanýtingar
- Slys í Dyrhólaey
- Íbúar greiða atkvæði um sameiningu
- „Það eru allir slegnir“
- Í gæsluvarðhald til 13. júní
- Einar S. Hálfdánarson: Týnd skilríki - fölsuð vegabréf
- Segir nei við breytingartillögum
- Alltaf gengið vel að semja við ESB
- Rætt um aðild að danska lyfjamarkaðnum
- Alþingi kaupi Landssímahúsið
- Vantaði u.þ.b. 100 undirskriftir
- Almenningur vakandi yfir fíkniefnabrotum
- Stefan Füle: Samstarf í gjaldeyrismálum
- Eldsneytisverð lækkar enn frekar
- Verkföll ítrekað stöðvuð með lögum
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 7. maí 2002, Innlent Nýr og endurbættur leikskóli á Hörðuvöllum í Hafnarfirði
- Fimmtudagur, 17. október 2002, Innlent Lögreglumönnum á Hólmavík fækkað vegna fjárhagserfiðleika
- Mánudagur, 28. apríl 2003, Innlent 35 milljónum króna varið til að styrkja rekstur HSS í ár
- Mánudagur, 3. maí 2004, Innlent Snerpa tekur í notkun eigið netsamband milli Ísafjarðar og Flateyrar
- Föstudagur, 13. desember 2002, Innlent Röskun verður áfram á starfsemi HSS
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi


































