Íslenskur friðargæsluliði slapp naumlega við fyrirsát í Afganistan
Magnús með dóttur sinni Kristínu Helgu við komuna til Keflavíkurflugvallar í fyrrakvöld. mbl.is
Magnús kom heim í fyrrakvöld og verður hér á landi í tíu daga leyfi áður en hann heldur aftur til friðargæslustarfa í Afganistan, en hann hefur verið þar undanfarna þrjá mánuði.
Hann sagði að um hefði verið að ræða 32 manna rútu, en hópurinn hefði verið ferjaður í tvennu lagi með dags millibili út á flugvöllinn í Kabúl. Þaðan hefði verið flogið með þýskum herflutningavélum til Úsbekistan og þaðan á herflugvöll í Köln í Þýskalandi. Í fyrri rútunni hefðu eingöngu verið þýskir friðargæsluliðar en í þeirri síðari fólk af fleiri þjóðernum. Árásin hefði verið gerð á leiðinni út á flugvöllinn í Kabúl frá herstöðinni sem væri höfuðstöðvar friðargæsluliðsins.
Hann sagði að mönnum hefði brugðið illa við árásina, enda væri um að ræða fyrstu skipulögðu árásina á öryggisgæslusveitinar í Afganistan. Áður hefðu sveitirnar orðið fyrir óhöppum. Ekið hefði verið á jarðsprengjur og skotið hefði verið á sveitirnar af handahófi, "en þetta er fyrsta skipulagða árásin og menn hafa áhyggjur af því ef þessu heldur fram, svona sjálfsmorðsárásum," sagði Magnús ennfremur.
Árásin fór þannig fram að bíl var ekið upp að rútunni og hann sprengdur í loft upp með fyrrgreindum afleiðingum. Magnús sagði að talið væri að í bifreiðinni sem sprengd var í loft upp hefðu verið um 130 kíló af TNT sprengiefni. Fjórir hefðu látist og tólf væru alvarlega slasaðir, en allir sem verið hefðu í rútunni hefðu slasast eitthvað.
Magnús sagði að þetta væru mjög slæmar fréttir og kæmu í kjölfar þess að flugvél hefði farist yfir Tyrklandi fyrir skömmu með 62 spænskum friðargæsluliðum innaborðs sem hefðu verið á leið heim til sín og einnig hefði þýskur friðargæsluliði ekið á skriðdrekasprengju á léttum jeppa með þeim afleiðingum að hann hefði látist og félagi hans slasast.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. ágúst 2003, Innlent Einn tékkneski ferðamaðurinn í aðgerð á sjúkrahúsi
- Sunnudagur, 12. október 2003, Innlent Ferðamaðurinn kominn fram
- Mánudagur, 24. nóvember 2003, Innlent Uppfylla ekki skilyrði flóttamannasamnings
- Þriðjudagur, 5. ágúst 2003, Innlent Velti rútunni viljandi til að bjarga mannslífum
- Mánudagur, 26. janúar 2004, Innlent Níu ökumenn grunaðir um ölvun við akstur í Reykjavík
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju





































