Var of upptekinn af útsýninu og ók aftan á bíl

Lítilli fólksbifreið var ekið aftan á jeppa á austurenda Þjórsárbrúar á sunnudag. Segir lögreglan á Hvolsvelli að ökumaður fólksbifreiðinnar hafi ekki verið með hugann við aksturinn þar sem hann var að sýna farþegum sínum mannvirki nýrrar brúar yfir Þjórsár sem verið er byggja. Báðum bifreiðunum var ekið til austurs og er fólksbifreiðin talsvert skemmd á eftir. Hvorki ökumenn né farþega sakaði.

Á þriðjudaginn í síðustu viku varð nokkuð harður árekstur á Suðurlandsvegi til móts við afleggjara V-Landeyjarvegar en þar hafði jeppabifreið með hestakerru í eftirdragi verið ekið áleiðis vestur Suðurlandsveginn. Þegar bíllinn beygði til vinstri inn á V-Landeyjarveginn var ökumaður lítillar fólksbifreiðar að hefja framúrakstur og rákust bílarnir saman.

Ökumaður fólksbifreiðarinnar hlaut minni háttar meiðsl en var fluttur til skoðunar á heilsugæslustöðina á Hvolsvelli. Fólksbifreiðin var óökufær á eftir og er mjög mikið skemmd ef ekki ónýt. Grunur leikur á að ökumaður fólksbifreiðarinnar hafi ekki verið með bílbeltið spennt en hann var einn í bifreið sinni. Í liðinni viku voru 18 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á vegum innan umdæmis lögreglunnar á Hvolsvelli. Í þeim hópi voru nokkrir erlendir ferðamenn sem boðið var að ljúka málum sínum með greiðslu sektar á staðnum. Segir lögreglan að þessi frágangur mála hafi gengið mjög vel og án vandkvæða.

Þrír ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur um síðastliðna helgi, einn á Rangárvallavegi á laugardag, annar við Hellu aðfaranótt sunnudagsins og loks var sá þriðji á Hvolsvelli eftir að hann hafði ekið bifreið sinni af Fljótshlíðarvegi ofan í skurð til móts við Stórólfshvol. Bifreiðin er mjög mikið skemmd ef ekki ónýt en ökumaðurinn, sem ekki var spenntur í öryggisbelti skarst lítið eitt á höfði og á höndum. Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús í Reykjavík.

Þá hafði lögreglan afskipti af mjög ölvuðum reiðhjólamanni á Suðurlandsvegi rétt austan við Hvolsvöll aðfaranótt laugardagsins en reiðhjólamaðurinn hafði tekið reiðhjólið ófrjálsri hendi á Hvolsvelli. Reiðhjólamanninum var ekið til sín heima en reiðhjólið tekið í vörslu lögreglunnar og er þar enn þar sem ekki er vitað hver eigandinn er.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj., 3-5 svefnherb, 1-...
Til sölu Nissan Almera - árgerð 2005
Til sölu Nissan Almera 1.8l, árgerð 2005. Sjálfskiptur. Dráttarkúla. Ekinn 110....
9 MYNDIR
Teg. 99117 - Mjúkir og þægilegir dömusandalar úr le...
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
 
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Útboð hólmavíkurhöfn

STRANDABYGGÐ Útboð Hólmavíkurhöfn...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...