Einn tékkneski ferðamaðurinn í aðgerð á sjúkrahúsi
Frá slysstað á Geldingardraga í morgun. mbl.is/Pétur Davíðsson
Rútan valt Skorradalsmegin á veginum yfir Dragann eftir að hafa mætt gráleitum jeppa. Rútan rann um 20-30 metra á veginum eftir að hafa oltið. Atvik eru ekki fullljós og vill lögreglan hafa tal af ökumanni jeppans og biður hann því að gefa sig fram.
Þeir ellefu ferðamenn sem sluppu lítið eða ekkert meiddir fengu aðhlynningu á Heilsugæslunni í Borgarnesi. Ferðamennirnir sem allir eru tékkneskir og frekar við aldur, komu til landsins í morgun og voru á leiðinni til Akureyrar með rútu SBA Norðurleiðar þegar slysið varð.
Milena Drahczalova fararstjóri hópsins sagðist óljóst muna eftir slysinu. Jeppi hefði skyndilega birst á miðjum veginum og virtist rekast utan í rútuna sem valt inn á veginn og rann áfram nokkurn spöl. Rignt hefði glerbrotum yfir farþegana og fljótlega var ljóst að einhverjir voru slasaðir. Fjórir sjúkrabílar sóttu fólkið og í Borgarnesi var Rauði krossinn kallaður til enda um fjöldaslys að ræða.
Milena sagði að fólkið færi núna á Hótel Borgarnes þar sem það átti að fá að fara í sturtu, borða og hvíla sig og ennfremur stæði áfallahjálp þeim til boða. Ekki hafði verið tekin ákvörðun um framhaldið.



































