Mikil óánægja með lokun gæsluvallar
Meiri eftirspurn en gert var ráð fyrir
Á föstudag samþykkti hverfisráð Vesturbæjar einróma tillögu borgarfulltrúa D-lista um að hvetja leikskólaráð til að endurskoða þá ákvörðun ráðsins að loka vellinum frá og með 15. ágúst nk. Telur hverfisráðið nauðsynlegt að Vesturbæingar eigi áfram kost á þeirri þjónustu sem felst í starfsemi gæsluvallar í hverfinu.Borgarráð hafði hins vegar áður greitt atkvæði með því að hætta rekstri gæsluvalla í núverandi mynd.
Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar og formaður hverfisráðs Vesturbæjar, segir að komið hafi í ljós að eftirspurnin eftir þjónustu gæsluvalla í Vesturbæ sé meiri en menn gerðu sér grein fyrir. "Mér finnst fyrst og fremst í ljósi þess að menn eru að leggja fram undirskriftarlista að það eigi að fara yfir málið á nýjan leik og við höfum hvatt leikskólaráð til að gera það," segir hann.
Gæsluvöllum fækkað úr 10 í 5 haustið 2004
Tólf gæsluvellir voru í Reykjavík í vor en gert er ráð fyrir að tíu vellir verði starfandi fram á haustið 2004 þegar þeim verður fækkað niður í fimm. Árið 1990 voru 27 starfandi gæsluvellir í Reykjavík. Á sama tíma hefur heimsóknum fækkað um nær 100 þúsund með auknu framboði af leikskólaplássum. Heimsóknir á gæsluvelli voru 163 þúsund árið 1990 en 63.500 árið 2002.Samkvæmt hverfaskiptingu borgarinnar þyrftu a.m.k. átta gæsluvellir að vera starfræktir í borginni til að einn gæsluvöllur væri í hverju hverfa borgarinnar. Þess má geta að kostnaður borgarinnar vegna reksturs gæsluleikvalla á síðasta ári nam rúmum 76 milljónum króna eða liðlega 1.200 krónum á hverja heimsókn.
Innlent »
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
- Mótmæla með götulistaverkum
- Málflutningur hefst 18. september
- Tillaga Vigdísar felld
- Leiðin um Hólssand fær
- Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta
- Glíma við áhrif jarðhitanýtingar
- Slys í Dyrhólaey
- Íbúar greiða atkvæði um sameiningu
- „Það eru allir slegnir“
- Í gæsluvarðhald til 13. júní
- Einar S. Hálfdánarson: Týnd skilríki - fölsuð vegabréf
- Segir nei við breytingartillögum
- Alltaf gengið vel að semja við ESB
- Rætt um aðild að danska lyfjamarkaðnum
- Alþingi kaupi Landssímahúsið
- Vantaði u.þ.b. 100 undirskriftir
- Almenningur vakandi yfir fíkniefnabrotum
- Stefan Füle: Samstarf í gjaldeyrismálum
- Eldsneytisverð lækkar enn frekar
- Verkföll ítrekað stöðvuð með lögum
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. ágúst 2003, Innlent Lokun gæsluvallar mótmælt
- Laugardagur, 26. október 2002, Innlent Vilja loka Lönguhlíð tímabundið í suðri
- Miðvikudagur, 25. febrúar 2004, Innlent Réttindakennurum fjölgar og réttindalausum fækkar
- Fimmtudagur, 22. ágúst 2002, Innlent Skólahald að hefjast í grunnskólum borgarinnar
- Laugardagur, 1. nóvember 2003, Innlent Borgaryfirvöld hefji alvöru viðræður við LR
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi


































