Kolröng viðbrögð að banna slæður múslima

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands.

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands. mbl.is

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sagði í nýársprédikun í Dómkirkjunni í morgun, að óttinn við múslima fái franska ríkið til að banna með lögum slæður þeirra og þá um leið trúartákn Gyðinga og kristinna. Sagði biskup, að þetta væru að sínu mati kolröng viðbrögð og tilraun til að reisa múra og byrgja glugga, fremur en að stuðla að gagnrýnu umburðarlyndi, og heilbrigðri iðkun og tjáningu trúarlífs, heilbrigðri og opinskárri umræðu og betri menntun. Þá sagði Karl í prédikuninni, að þörf væri þjóðarvakningar hvað varðaði viðhorf til barna.

Karl Sigurbjörnsson sagði, að margt benti til þess að í Evrópu muni átök komandi ára í auknum mæli snúast um sess trúar í þjóðlífi og í hinu opinbera rými. „Óttinn við múslima fær franska ríkið til að banna með lögum slæður þeirra - og þá um leið trúartákn Gyðinga og kristinna. Þetta eru að mínu mati kolröng viðbrögð, viðbrögð óttans, tilraun til að reisa múra og byrgja glugga, fremur en að stuðla að gagnrýnu umburðarlyndi, og heilbrigðri iðkun og tjáningu trúarlífs, heilbrigðri og opinskárri umræðu og betri menntun. Reyndar munu Frakkar nú hafa lögleitt trúarbragðafræðslu og kristinfræði í skólakerfinu, í fyrsta sinn í heila öld. Það er eftirbreytnivert. Hér á Vesturlöndum, ekki síst á Íslandi, hefur kristnifræði og trúarbragðafræðslu verið æ meir þokað út úr skólakerfinu. Hið göfuga markmið er hlutleysi og umburðarlyndi, en afleiðingin er iðulega hið gagnstæða. Það er nefnilega ekkert andlegt eða trúarlegt tómarúm til," sagði biskup.

Þá sagði hann að þótt hagtölur segðu að Íslendingar séu í hópi ríkustu þjóða heims virðist þeir ekki hafa efni á börnum. Þau virðist vera fyrir. Spurði hann, hvaða sögu það segði, að níuhundruð fóstureyðingar færu að meðaltali fram á ári af félagslegum ástæðum en þetta væri á tuttugu ára bili sama og allir íbúar Kópavogs. „Víst eru til góðar og gildar ástæður, ótal góðar og gildar félagslegar ástæður, læknisfræðilegar, og margvísleg neyð. Ég er ekki að dæma þær mæður sem hafa þurft að axla þá örðugu ákvörðun, en við megum ekki láta eins og þetta komi okkur ekki við," sagði Karl.

Nýársprédikunin fer hér á eftir:

Guð gefi þér og landslýð öllum gleðilegt nýtt ár, í Jesú nafni.

Við höfum fengið að fagna nýju ári, árinu tvöþúsund og fjögur frá fæðingu frelsarans. Ljósadýrð flugeldanna sem á miðnætti lýstu himininn með tilheyrandi drunum og gný er slokknuð og gnýrinn hljóðnaður. En jólaljósin loga enn og fagna blessaðri nýjárssól. Velkomið vertu nýja ár!

Snemma á síðustu öld orti skáldið Þorsteinn Erlingsson:

    „..... jeg vil lifa litlu jólin mín
    Við ljósið það, sem skín úr barnsins augum.
    Mjer finst þar inn svo frítt og bjart að sjá,
    að friðarboðið gæti þángað ratað,
    og enn þar minni heit og þögul þrá
    á þúsund ára bróðurríki glatað.
    Þar vefst úr geislum vonarbjarmi skær
    sem veslings kalda jörðin eigi að hlýna;
    Jeg sje þar eins og sumar færast nær,
    jeg sje þar friðarkonúngs stjörnu skína."

Við vonarbjarmann frá Betlehem heilsum við ári nýju. Ljósið tæra, hreina, sem skín af barnsins augum, vísar fram til vonarríkrar framtíðar.

Það var áhrifarík frásögn á baksíðu Morgunblaðsins sl. laugardag undir fyrirsögninni: „Lífgjöfin besta jólagjöfin." Þar er vitnað í orð móður á Flateyri, sem lýsir á áhrifaríkan hátt þegar sonur hennar á öðru aldursári, var nærri drukknaður á aðfangadag. Ekki mátti tæpara standa. En snarræði viðstaddra og hárrétt viðbrögð hinna mörgu varð til bjargar. „Ég er þakklát fyrir að allt fór vel. Það skiptir mestu máli.“ Segir hún. Og frásögn blaðsins lýkur með orðunum: „Það hefur ekki mikið farið fyrir hátíðleika jólanna og segir (móðirin) að atvikið á aðfangadag setji allt umstangið í kringum þennan árstíma í annað samhengi og undirstriki hvað sé mikilvægast í lífinu.“

Við samfögnum þeim og öðrum sem gæfan hefur brosað við, og öllum hamingjubörnum. Engill gleðinnar gæti þeirra og leiði. Og við hugsum til þeirra sem áföll og auðnubrigði hafa sótt heim á árinu sem leið, engill líknar og umhyggju umvefji þau öll.

Hvað er mikilvægast í lífinu? Svarið skín við okkur af barnsins augum, jólabarnsins. Lífið er besta gjöfin. Barnið, jólabarnið, gaf líf sitt heiminum til lífs og gerði hag og kjör barnanna að sínum. Og þegar hann var spurður hver væri mestur þá benti hann á barnið, það er mest og mikilvægast alls.

Barnið er ekki bara undursamleg gjöf. Það er krafa á hendur okkur sem eldri erum. Ekkert hefur eins áhrif á samskipti fólks, verðmætamat og lífsviðhorf, eins og það að eignast og ala upp barn. Barnið minnir okkur á varnaleysi lífsins. Það vekur þakklætið, auðmýktina, og tilfinninguna fyrir þeirri ábyrgð sem okkur er lögð á herðar: Að vaka yfir velferð þess til lífs og sálar. Að beina því á gæfuvegu og heilla sér og öðrum.

Tæru augun barnsins bera birtu af ljóma barnsins í jötunni, frelsara heimsins. Hvort tveggja á í vök að verjast í heiminum í dag, börnin okkar og Jesúbarnið, Jesú trú. Svo virðist sem mat okkar yfirleitt á því hvað mikilvægast er hafi farið afvega. Græðgin og fýsnin grúfa yfir.

*

Könnun meðal tíu ára barna hér á landi leiðir í ljós að helsta áhyggjuefni íslenskra barna sé annríki foreldra og fjármál heimilisins. Tökum eftir þessari umsögn barna okkar um okkur og samfélag okkar! Umboðsmaður barna hefur kallað eftir opinberri heildarstefnu í málefnum barna og þjóðarvakningu. Það er alveg ljóst að við þurfum að vakna upp og meta börnin meira og gefa þeim tíma, börnunum sem sannarlega er mikilvægasta auðlind landsins. Sú auðlind virðist afgangsstærð á Íslandi. Það virðist enginn tími fyrir börnin. Þau verða fórnarlömb lífsgæðakapphlaupsins. Vanlíðan barnanna, kvíði og vonleysi ber því vitni, og alls konar dæmi um vanrækslu sem börnin okkar líða. Það er auðvelt að skella skuldinni á kerfið en er ekki eitthvað að hvað varðar gildismat okkar sjálfra? Er ekki kominn tími til að horfa í eigin barm, er ekki eitthvað alvarlegt að þegar við megum varla vera að því að sinna því sem mestu máli skiptir?

Hagtölur segja að við séum í hópi ríkustu þjóða heims. En virðumst þó ekki hafa efni á börnum. Þau virðast vera fyrir. Ber það ekki vott um fátækt, andlega fátækt, um samfélag sem hefur misst sjónar á því hvað mikilvægast er, að hlúa að sjálfu lífinu? Það er mikil blessun foreldrum að eignast barn og ekki er öllum það gefið. Lífið er gjöf og mikilvægast alls. „Blessun fylgir barni hverju“ var almælt á fyrri tíð.

En hvaða sögu segja að meðaltali níuhundruð fóstureyðingar á ári af félagslegum ástæðum? - hjá sjöundu ríkustu þjóð veraldar! Það er á tuttugu ára bili sama og allir íbúar Kópavogs. Víst eru til góðar og gildar ástæður, ótal góðar og gildar félagslegar ástæður, læknisfræðilegar, og margvísleg neyð. Ég er ekki að dæma þær mæður sem hafa þurft að axla þá örðugu ákvörðun, en við megum ekki láta eins og þetta komi okkur ekki við. Við verðum að gefa gaum að þeirri staðreynd að þetta eru hrikalegar tölur, þúsundir einstaklinga sem við höfum ekki haft rúm fyrir í velsæld íslensks samfélags. Það er harmsefni. Einhver móðuharðindi hafa byrgt okkur sýn gagnvart því sem máli skiptir!

Á s.l ári vöktu konur athygli á því hvernig börn eru í auknum mæli misnotuð í auglýsingaskyni. Bent var á hvernig vafasöm tákn og skilaboð eru notuð í auglýsingum og á ýmsum barnafatnaði. Æ verða meir áberandi auglýsingar sem tæla sakleysingjann inn í viðjar kyntáknsins, og neysluþrælkunarinnar. Þarna eru á ferðinni ginningar sem barnið hefur litlar forsendur til að vinna úr og standast gegn. Yfir og allt um kring eru táknmyndir og ímyndir sem innræta ómótaðri sál að hlutir og tæki og réttu merkin séu nauðsynleg til að gera mann aðlaðandi og eftirsóknarverðan í augum annarra, jafnvel áður en barnið hefur hugmynd um eðli þess sem sóst er eftir þá lærist atferlið og tungutakið.

Klámfengið látæði og æ grófara ofbeldi á myndböndum og fjölmiðlum hefur áhrif á ómótaða sál. Minnumst þess líka að það er alvörumál þegar blygðunarkennd barns er ofboðið og mörk hins sæmilega verða óljós, alvörumál vegna þess að blygðunarkenndin er ein sterkasta vörn sjálfsvirðingar og mannhelgi.

Verndum bernskuna! Þörf er þjóðarvakningar hvað varðar viðhorf til barna. Að leyfa þeim að vera börn. Að sinna börnunum betur. Að stuðla að því að barnið fái að vaxa og þroskast í kyrrð og næði. Ekkert foreldri megnar að vera barni sínu allt, og engum er fært að uppfylla allar þarfir þess né verja það fyrir öllum háska. „Heimsins grjót er hart og sárt.“ Barnið lærir að skilja lífið og heiminn umfram allt með aðstoð tilfinninga sinna og reynslu. Þess vegna þarf það á nánum persónutengslum að halda, umhyggju og aga, ástúð og styrk, mildi og festu. Það á kröfu til að hamlað sé gegn hinum gegndarlausa flaumi áreitanna, ofurspennu afþreyingarinnar, og ginningum auglýsinganna.

Bernskan er tími þar sem maður á rétt á að vera smár og óviti og á ekki að þurfa að axla áhyggjur hinna fullorðnu. „Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn, hugsaði eins og barn, ályktaði eins og barn.....“ sagði postulinn í óðnum um kærleikann. Þegar tíminn fullnast þá ljúkast upp dyrnar að leyndardómum lífsins í takti við eigin þroska barnsins.

Látum það vera keppikefli okkar á þessu nýja ári að snúa baki við önnum og ærustu, gefa sjálfum okkur og hvert öðru meiri tíma umhyggju. Munum að lífið er dýrmætast alls, „lífgjöfin er besta jólagjöfin" sagði móðirin, sem minnt var óþyrmilega á hvað er mikilvægast í lífinu. Ef við gætum eflt þá auðlegð sem er fólgin í því að eiga tíma fyrir það sem máli skiptir, umhyggju um börnin, náungann, lífið. Ef við gætum sem einstaklingar og samfélag beint kröftunum að umhugsun um lífsgæði og siðgæði. Ef við gætum mótað þær félagslegu aðstæður, siðferði, fjölskyldustefnu og vinnuumhverfi sem hlynnir að heimilinu og uppeldishlutverki þess, styður við að foreldrar standi við skuldbindingar sínar gagnvart lífinu, gerir barnafjölskyldum kleyft að sinna börnum sínum, þar sem þroski barnsins er í fyrirrúmi, félagslegur, andlegur, líkamlegur þroski.

*

Um jól voru kirkjur þéttsetnar um land allt. Guði sé lof fyrir allt sem fólk leggur á sig til að koma jólaboðskapnum, helgi og hátíð til skila. Þéttsetnar kirkjur á aðfangadagskvöld er tákn þess að kirkja og kristni gegna enn mikilvægu hlutverki í þjóðlífinu. „Klukkur landsins“ sem Ríkisútvarpið flytur okkar á nýjársdagsmorgni minnir okkur á þau heilögu vébönd helgidómanna sem umlykja landið allt til sjávar og sveita og signa líf og land birtu fagnaðarerindisins. Þó má sjá hér ýmis dæmi þess hvernig andlaus efnishyggjan og yfirborðsmennskan leiðir til öryggisleysis og snertifælni gagnvart trú, og óeðlilegra varnaviðbragða þegar trúin birtist sem sýnilegt afl í lífi fólks.

Hið kristna samfélag á Íslandi, þjóðkirkjan og önnur kristin trúfélög og söfnuðir, þurfa að snúa bökum saman í sókn fyrir hinn kristna málstað, að treysta hinar kristnu rætur, gildi og sjálfsmynd á okkar miklu alvöru og örlagatímum.

Margt bendir til þess að í Evrópu munu átök komandi ára í auknum mæli snúast um sess trúar í þjóðlífi og í hinu opinbera rými.

Óttinn við múslima fær franska ríkið til að banna með lögum slæður þeirra - og þá um leið trúartákn Gyðinga og kristinna. Þetta eru að mínu mati kolröng viðbrögð, viðbrögð óttans, tilraun til að reisa múra og byrgja glugga, fremur en að stuðla að gagnrýnu umburðarlyndi, og heilbrigðri iðkun og tjáningu trúarlífs, heilbrigðri og opinskárri umræðu og betri menntun. Reyndar munu Frakkar nú hafa lögleitt trúarbragðafræðslu og kristinfræði í skólakerfinu, í fyrsta sinn í heila öld. Það er eftirbreytnivert. Hér á Vesturlöndum, ekki síst á Íslandi, hefur kristnifræði og trúarbragðafræðslu verið æ meir þokað út úr skólakerfinu. Hið göfuga markmið er hlutleysi og umburðarlyndi, en afleiðingin er iðulega hið gagnstæða. Það er nefnilega ekkert andlegt eða trúarlegt tómarúm til.

„Þú hófst mína sál yfir hégóma og tál“ segir Davíð skáld frá Fagraskógi um móður sína. Og þjóðskáldið Matthías minntist móður sinnar, fátækrar almúgakonu: „Enginn kenndi mér eins og þú hið eilífa og stóra, traust og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir.“ Guði sé lof að við getum mörg sagt hið sama um okkar mæður, já og feður og ömmur og afa. Þeir eru margir foreldrarnir sem leggja sig fram um að miðla börnum sínum þeim auði sem aldrei fyrnist, trú og bæn. Guð launi það og blessi þau og gefi góðan ávöxt.

Það er nefnilega ekki á valdi nokkurs manns að gefa lífi sínu merkingu sem ber uppi og stenst „stormana, helið og hjúpinn.“ Það staðfestir reynsla kynslóðanna að sá sem hefur ekki lært að kveða að stafróf trúarinnar, né þekkja grundvallamynstur sagnanna um „upphaf og endinn, Guð og mann og lífsins og dauðans djúpin“ verður ólæs og orðvana og áttavilltur gagnvart mótlæti, áföllum og auðnubrigðum sem óhjákvæmilega fylgja öllu lífi. Það er einmitt grundvallaratriði kristinnar trúar og siðar að við þurfum ekki að standa ein og bera okkur sjálf. Hönd Guðs leiðir, englar hans vaka yfir, samfélag kirkju hans á himni og jörðu umvefur og ber á örmum sínum. Kvöldbæn barnsins, bænaversin, sálmarnir, sögurnar um Jesú, iðkun og athöfn sem greiðir helginni og birtunni veg að barnshjartanu, er og verður öflug forvörn og farvegur blessunar.

*

Afl hins illa er staðreynd, máttur myrkursins, og syndin er lævís og situr um sálirnar. Hið illa verður ekki sigrað með valdi einu saman. Þetta skynjum við í ljósinu sem skín af barnsins augum. Ef takast á að yfirbuga hið illa í heiminum, afl hefndanna, ofbeldisins, fýsnar og græðgi, þarf meir en öflugri varnakerfi, múra og vopn, það þarf trú á hið góða og sigur þess, og það þarf samstillt afl góðvildar og umhyggju til að reka út óttann og ummynda valdasýki og sjálfselsku, laða á veg sannra dyggða. Til að friður Guðs verði á jörðu þarf þau sem Guð hefur velþóknun á: þau fátæku í anda, sorgbitnu, hógværu, miskunnsömu, hjartahreinu, friðflytjendur, þau sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu. Þetta eru þau sem munu erfa jörðina í því ríki Guðs sem Kristur Jesús boðar. Í þessu er vonin fólgin um nýjan og betri heim. Við verðum að „snúa við“, samviska okkar að vakna, minnug þess að líf allra heimsins barna er dýrmætast alls.

Og við birtuna sem skín af barnsins augum mun „veslings kalda jörðin“ hlýna og „sumar færast nær“ og lífið fagna. Gleðilegt ár í frelsarans Jesú nafni. Dýrð sé Guði, föður, syni og heilögum anda um aldir alda. Amen

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Palomino fellihýsi með loftpúðafjöðrun
Til sölu Palomino 4102 árg. 2008 fellihýsi með vandaðri loftpúðafjöðrun , loftdæ...
Til sölu Kia Sorento 2007 diesel 4X4 ekinn 77þús
Sjálfskiptur,1 eigandi,ekkert ákvílandi,dr.beisli, dr.geta 3500kg,skoðaður 2012...
Bumbo barnastóll
Lítið notaður Bumbo barnastóll til sölu á hálfvirði. Upplýsingar í síma 862 30...
Húsbíll til sölu - Fiat, Sharky L7
2007 árgerð af Sharky L7 til sölu. Keyrður 24þ km. Vel viðhaldið og þjónustubók ...
 
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...