Fyrrum framkvæmdastjóri Framsýnar ákærður
Framsýn hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna málsins:
„Ríkislögreglustjóri hefur gefið út ákæru á hendur fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðsins Framsýnar. Af því tilefni vilja núverandi stjórnendur sjóðsins koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri.
Grunur um brot fyrrverandi framkvæmdastjóra vaknaði árið 2001 í kjölfar innri athugunar. Þá þegar vísaði stjórn sjóðsins málinu til Fjármálaeftirlitsins. Síðar sendi Fjármálaeftirlitið málið til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, sem hefur nú lokið rannsókn þess.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri er ákærður fyrir umboðssvik og brot gegn lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Að auki er hann sakaður um að hafa brotið gegn fjárfestingarstefnu Lífeyrissjóðsins Framsýnar og fyrir að hafa tekið ákvarðanir án vitundar eða samþykkis stjórnar sjóðsins. Meint brot ná til tímabilsins 1997 til 1999 en fyrrverandi framkvæmdastjóri lét af störfum á árinu 2000. Ekki er grunur um frekari lögbrot af hans hálfu.
Enn er óljóst hvert tjón sjóðsins hefur orðið en afskrifuð útlán vegna þessara mála nema 35,7 milljónum króna. Lífeyrissjóðurinn Framsýn hefur lagt fram skaðabótakröfu á hendur framkvæmdastjóranum fyrrverandi sem nemur þeirri fjárhæð að viðbættum vöxtum. Ekki reyndist þörf á að hækka framlög á afskriftareikning sjóðsins vegna málsins.
Þótt hér sé um háar fjárhæðir að ræða skal tekið skýrt fram að réttindi sjóðfélaga munu ekki skerðast vegna þessa máls. Staða sjóðsins er sterk, enda var raunávöxtun eigna sjóðsins 13,9% á síðasta ári.
Strax í kjölfar þessa máls ákvað stjórn Lífeyrissjóðsins Framsýnar að taka verklagsreglur sjóðsins til endurskoðunar með það að markmiði að styrkja og efla innra eftirlit sjóðsins. Einnig var gripið til aðgerða til að lágmarka hugsanlegt tjón vegna meintra brota fyrrverandi framkvæmdastjóra. Nýjar reglur voru settar árið 2002 og fela þær meðal annars í sér skýra aðgreiningu milli innra og ytra eftirlits hjá sjóðnum og ströng ákvæði um öll verðbréfakaup.



































