NATO verði grundvallarstofnun öryggismála

Sólveig Pétursdóttir, formaður utanríkismálanefndar, segir fundarmenn á ráðstefnu um öryggismál í Evrópu, sem haldin var í Bratislava í Slóvakíu, hafa verið sammála um að NATO yrði að vera grundvallarstofnun fyrir öryggismál í heiminum. Markmið ráðstefnunnar var einkum að ræða stækkun Evrópusambandsins (ESB) og Norður-Atlantshafsbandalagins (NATO) sem og samstarf við ný nágrannaríki Evrópu.

"Þetta var góð ráðstefna og margt athyglisvert sem kom þar fram. Það var rætt mikið um hryðjuverk í heiminum. Sérstaklega var minnst á hina hræðilegu árás í Madríd. Forseti Slóvakíu talaði um það að hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001 hefðu breytt heimsmyndinni. Í Madríd hefðu hryðjuverkamenn í fyrsta sinn náð að hafa áhrif á úrslit kosninga og þar með lýðræðið," segir Sólveig í samtali við Morgunblaðið.

Hún segir mikla samstöðu hafa ríkt meðal fundarmanna um baráttuna gegn hryðjuverkum. Framkvæmdastjóri NATO hafi m.a. lýst því yfir að nýjar ógnir væru fyrst og fremst hryðjuverk og ljóst væri að NATO þyrfti að grípa til aðgerða gegn þeim sem og gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

Sá framkvæmdastjóri innan ESB sem hefur umsjón með stækkunarferlinu sagði m.a. á ráðstefnunni að Evrópa og ESB væru ekki sami hluturinn. Hann nefndi sérstaklega málefni Tyrklands og taldi það hugsanlega geta lagt mikið af mörkum við að byggja brú á milli múslimaheimsins og vesturveldanna. Tók hann undir með öðrum að hætta væri á hryðjuverkum á næstu árum og að 11. september hefði í raun breytt Evrópu jafnmikið og Bandaríkjunum.

"Það var rætt ítarlega um hlutverk og stöðu NATO. Fram kom að flesti ríki Evrópu telja það vera sérstakt markmið að fá aðild að NATO og það virðist vera almennur og víðtækur stuðningur við NATO í Evrópu," segir Sólveig. Hún segir framkvæmdastjóra NATO jafnframt hafa sagt að stækkun ESB og stækkun NATO væru nátengdar. Þrátt fyrir skýra stefnu ESB í varnarmálum kæmi hún aldrei í staðinn fyirr NATO.

"Fulltrúi þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna talaði mikið um hryðjuverk og undirstrikaði m.a. að árás á eitt ríki væri árás á þau öll og hryðjuverk væru árás á lýðræði. Þá lagði hann áherslu á að við yrðum að halda tryggð hvert við annað við þessar aðstæður," segir Sólveig.

Ísland eina landið í Evrópu án loftvarna

Ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá öllum ríkjum Evrópu auk þess sem Bandaríkjamenn tóku þátt í henni. Norður-Atlantshafstengslin voru rædd á ráðstefnunni, en Sólveig segir þau tengsl afar mikilvæg fyrir Ísland og að þau séu greinilega að eflast. "Það kom skýrt fram að fundarmenn voru sammála um það að NATO yrði grundvallarstofnun fyrir öryggismál í heiminum í dag."

Einn yfirmanna NATO benti á að tryggja þyrfti loftvarnir Eystrasaltsríkjanna til að fullnægja ákvæðum fimmtu greinar stofnsamnings NATO í kjölfar þess að þau gerðust aðilar. Sólveig segist telja ummælin athygliverð í ljósi framtíðar herstöðvarinnar í Keflavík. "Ef þoturnar í Keflavík fara þá yrði Ísland að öllum líkindum eina landið í Evrópu án loftvarna. Stöðin í Keflavík dugar ekki ein og sér í baráttunni við hryðjuverk en hún hefur fælingarmátt," segir Sólveig.

Hún segir Íraksstríðið ekki hafa borið á góma á ráðstefnunni en áhersla hafi verið lögð á mikilvægi þess að efla samstarf í varnarmálum milli Bandaríkjanna og Evrópu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Stórar kjarrivaxnar útsýnislóðir
í skjólgóðri hlíð mót suðri í Hvalfirði, 55 km frá Rvík. Frábært útsýni. Heitt v...
Til sölu 20ha
Til sölu c.a.20 ha lóð í Biskupstungum. Frábær staðsetning bæði fyrir hestafólk ...
125 cc PitBike
Til sölu lítið notað X-motos PitBike árg. 2008. verð 70 þús! Baldur 848-6972...
Ljósavélar í báta og skip 10 -1000 kw
Útvegum allar gerðir af ljósavélum, Cummins, Perkins, fl,. teg Stamford , leory ...
 
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...