Leitað að þjóðarblóminu
Fjólan á möguleika, eins og önnur íslensk blóm á að verða valin þjóðarblómið. mbl.is
Tilgangur verkefnisins, sem hefur yfirskriftina „leitin að þjóðarblóminu", er að komast að því hvort tilgreina megi blóm sem gæti haft táknrænt gildi og sem þjónaði hlutverki sem sameiningartákn og mætti nýta í kynningar- og fræðslustarfi bæði hér á landi og á erlendum vettvangi. Jafnframt er markmið verkefnisins að skapa umræður um blóm og gróður til að auka samstöðu um gróðurvernd.
Í tilkynningu frá Landvernd segir, að verkefnisstjórnin telji að gera verði tilteknar kröfur til þjóðarblómsins. Það þurfi að vera vel sýnilegt víða um land og einkennandi fyrir gróðurfar þess. Það þurfi að hafa tiltölulega langan blómgunartíma, vera auðvelt að teikna og vel fallið til kynningarstarfs.
Verkefnisstjórnin hefur ákveðið að leita bæði til grunnskólanna í landinu og til almennings í leit að tillögum. Nýlega var öllum grunnskólum landsins sent bréf þar sem þeir voru hvattir til að taka þátt í leit að þjóðarblóminu. Skólar sem vilja leggja eitthvað til málanna eiga að skila tillögum sínum eigi síðar en 15. september n.k
Verkefnið er að frumkvæði landbúnaðarráðuneytis og er unnið í samstarfi við menntamálaráðuneyti, samgönguráðuneyti og umhverfisráðuneyti. Landvernd hefur verið falin umsjón með framkvæmd, en Landvernd stóð fyrir tveimur árum að leitinni að þjóðarfjallinu í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands. Sú leit leiddi í ljós víðtæka samstöðu um að lýsa Herðubreið þjóðarfjall Íslands.
Verkefnisstjórn fyrir leitina að þjóðarblóminu skipa Níels Árni Lund, landbúnaðarráðuneyti, formaður, Vilhjálmur Lúðvíksson menntamálaráðuneyti, Helga Haraldsdóttir samgönguráðuneyti og Ingibjörg Ólafsdóttir umhverfisráðuneyti.
Innlent »
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
- Mótmæla með götulistaverkum
- Málflutningur hefst 18. september
- Tillaga Vigdísar felld
- Leiðin um Hólssand fær
- Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta
- Glíma við áhrif jarðhitanýtingar
- Slys í Dyrhólaey
- Íbúar greiða atkvæði um sameiningu
- „Það eru allir slegnir“
- Í gæsluvarðhald til 13. júní
- Einar S. Hálfdánarson: Týnd skilríki - fölsuð vegabréf
- Segir nei við breytingartillögum
- Alltaf gengið vel að semja við ESB
- Rætt um aðild að danska lyfjamarkaðnum
- Alþingi kaupi Landssímahúsið
- Vantaði u.þ.b. 100 undirskriftir
- Almenningur vakandi yfir fíkniefnabrotum
- Stefan Füle: Samstarf í gjaldeyrismálum
- Eldsneytisverð lækkar enn frekar
- Verkföll ítrekað stöðvuð með lögum
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 22. október 2004, Innlent Holtasóley fékk flest atkvæði í kosningu um þjóðarblóm Íslands
- Föstudagur, 11. mars 2005, Innlent Verkefnisstjórn skipuð um stefnumörkun í byggðamálum Suðurlands
- Þriðjudagur, 3. maí 2005, Innlent Fær verðlaun fyrir umhverfismál
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2003, Innlent Virkjunarkostir flokkaðir eftir umhverfisáhrifum og arðsemi
- Miðvikudagur, 7. apríl 2004, Innlent Vilja styrkja svæðisbundinn hagvöxt
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi



































