Stjórn KÍ lýsir yfir áhyggjum af stöðu samningaviðræðna
Ályktun KÍ í heild sinni
"Nú standa yfir samningaviðræður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands við samninganefnd Launanefndar sveitarfélaga um nýjan kjarasamning fyrir grunnskólann. Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir áhyggjum af stöðu samningaviðræðna og skilningsleysi viðsemjenda gagnvart kröfum kennara og skólastjórnenda í grunnskólum.
Í kjarasamningum árið 2001 náðist mikilvægur áfangi í að leiðrétta launakjör félagsmanna Kennarasambands Íslands í grunnskólum. Nú þarf að taka enn betur á þannig að grunnskólarnir geti greitt laun sem standast samanburð við aðra vinnustaði þar sem menntunar og sérhæfingar er krafist og starfsmenn bera viðlíka ábyrgð í starfi. Launaþróun í grunnskólum verði ekki lakari en hjá samanburðarhópum opinberra starfsmanna.
Stjórnin skorar á stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að beita öllum tiltækum ráðum til að semja við Félag grunnskólakennara og Skólastjórafélag Íslands um nauðsynlegar breytingar á launum og vinnutíma í grunnskólum, þannig að sátt ríki um starfið þar og grunnskólinn sé á hverjum tíma eftirsóknarverður og aðlaðandi vinnustaður bæði fyrir starfsmenn og nemendur.
Hlutverk kennara og skóla hefur tekið miklum stakkaskiptum á undanförnum árum vegna breytinga á menntun og skólastarfi og vegna breyttra samfélagshátta. Í hlut kennara kemur núorðið margt annað en að kenna nemendum og meta nám þeirra. Aukið þjónustuhlutverk grunnskóla og aukið samstarf þeirra við heimilin um uppeldi barna og unglinga hefur haft veruleg áhrif á starfsemi grunnskólans í heild. Sífellt meiri tíma er varið í samstarf innan skóla og utan, aðstoð og ráðgjöf, umsjón og eftirfylgni. Allt þarf þetta rými innan vinnutíma kennara.
Í síðustu kjarasamningum var kennsluskylda ekki lækkuð og undirbúningstími fyrir kennslu var skertur, m.a. til að rýma fyrir öðrum störfum, og hugtakið „fastlaunasamningur“ var tekið upp. Reynslan af þessu er ekki góð og þessu þarf að breyta. Vinnutími og vinnuskipulag er, auk launahækkunar, aðalmálið í þessum kjarasamningum. Kennsluskylda í grunnskólum er of há og undirbúningstími fyrir hverja kennslustund of lítill. Samningamenn sveitarfélaga þurfa að horfast í augu við þá staðreynd að kennsla, undirbúningur og úrvinnsla, auk námsmats, er kjarninn í starfi kennara og þessir þættir mega ekki sitja á hakanum vegna annarra starfa.
Grunnskólinn er einn af hornsteinum samfélags okkar og í málefnum hans eiga landsmenn hagsmuna að gæta. Stjórn Kennarasambands Íslands hvetur almenning í landinu, jafnt sem stjórnvöld, til að gefa störfum og kjörum kennara og skólastjórnenda í grunnskólum landsins gaum og styðja réttmætar kjarakröfur félagsmanna Kennarasambands Íslands í þeim erfiðu samningaviðræðum sem nú standa yfir."




































