Ellefu bjóða sig fram í stjórn Heimdallar ásamt Helgu
Hópurinn sem býður sig fram í stjórn Heimdallar. mbl.is
Þeir sem bjóða sig fram í stjórnina ásamt Helgu eru Steinunn Vala Sigfúsdóttir, nemi í byggingaverkfærði við HÍ. Hún var stúdent frá MA, var inspector scholae í MA og formaður Félags framhaldsskólanema 2000-2001. Hún sat í Stúdentaráði HÍ fyrir Vöku 2001-2003 og situr í jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar. Steinunn bauð sig fram til stjórnar Heimdalls í síðustu kosningum ásamt Bolla Thoroddsen og fleirum.
Steingrímur Arnar Finnsson, starfsmaður KB-banka. Stúdent frá MH árið 2000. Lauk B.sc gráðu í þeim fræðum frá Háskóla Íslands nú í vor. Situr í stjórn Heimdallar, sat í stjórn Ökonomiu, félagi hagfræðinema, á liðnum vetri og skrifar reglulega pistla á Frelsi.is.
Camilla Ósk Hákonardóttir. Stúdent af fjölmiðlabraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti og lauk B.Sc. í Business Management frá Coastal Carolina University árið 2003. Stjórn landssambands Society for Advancement of Management (SAM), varaforseti International Club, forseti SAM ásamt því að stofna ráðgjafahóp nemenda í Wall College of Business.
Sölvi Sturluson, nemi í Verslunarskóla Íslands. Situr í nefnd um árlega stuttmyndakeppni í VÍ. Spilar knattspyrnu með Knattspyrnufélagi Reykjavíkur og hefur gert frá blautu barnsbeini.
Erla Tryggvadóttir, stjórnmálafræðingur. Stúdent frá Verslunarskóla Íslands af hagfræði og málabraut. Erla sat m.a. í ritstjórn Stúdentablaðsins og var einn skipuleggjenda IceMUN (www.icemun.hi.is). Sat í stjórn Politicu, félags stjórnmálafræðinema og var ritstjóri vefrits stjórnmálafræðinema. Erla skrifar reglulega á vefritið Tíkin.is.
Snorri Stefánsson, laga- og hagfræðinemi við HÍ. Stúdent frá MR. Situr í stjórn Heimdallar og er annar tveggja ritstjóra Frelsi.is. Situr í stjórn Orators félagi laganema og situr í undirbúningshóp réttarfars- og stjórnskipunarnefndar Sjálfstæðisflokksins fyrir Landsfund 2005.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, laganemi við Háskólann í Reykjavík. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1999. Situr í stjórn Heimdallar og skrifar reglulega pistla á Tíkin.is og Frelsi.is.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, hagfræðinemi við HÍ. Stúdent MS 2002. Var fulltrúi nemenda í skólanefnd MS 2000-2002. Gjaldkeri Ökonomiu, félags Hagfræðinema og framkvæmdastjóri Jafnréttisdeildar Heimdalls. Skrifar reglulega greinar á frelsi.is
Agnar Tómas Möller, meistaranemi í iðnaðarverkfræði. Agnar er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1999 og lauk B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá HÍ 2003.
Sóley Kaldal, nemi í heimspeki og verkfræði. Stúdent frá Verslunarskóla Íslands 2003 af stærðfræðibraut. Sat í ritstjórn Kvasis og tók þátt í Nemendamótum sem dansari og leikari.
Kristinn Már Ársælsson, nemi í heimspeki og félagsfræði við HÍ. Stúdent af félagsfræðibraut MS árið 2000. Kristinn Már var formaður Skólafélags Menntaskólans við Sund veturinn 1999-2000. Situr í stjórn Heimdallar, er ritstjóri Frelsi.is og í undirbúningshóp skóla- og fræðslunefndar Sjálfstæðisflokksins fyrir Landsfund 2005.




































