Gæslan fær gjafir frá danska hernum

Sigurður Ásgrímsson sprengjusérfræðingur, Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri, Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Þorsteinn Davíðsson aðstoðarmaður ráðherra, Þorsteinn Geirsson ...

Sigurður Ásgrímsson sprengjusérfræðingur, Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri, Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Þorsteinn Davíðsson aðstoðarmaður ráðherra, Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri og Stefán Eiríksson skrifstofustjóri virða fyrir sér nýja vélmennið. Inni í bifreiðinni er Ágúst Magnússon sprengjusérfræðingur að stjórna vélmenninu. LHG/Dagmar Sigurðardóttir

Dómsmálaráðherra og forstjóri Landhelgisgæslunnar tóku formlega við tveimur sérútbúnum bifreiðum og tveimur vélmennum til sprengjueyðingar ásamt tilheyrandi búnaði að gjöf frá danska hernum við Þjóðmenningarhúsið í dag.

Í frétt frá Landhelgisgæslunni segir að hún hafi verið í miklum og góðum samskiptum við danska herinn í áratugi og hafi sprengjusérfræðingar stofnunarinnar m.a. sótt menntun og þjálfun til hans.

„Þegar forstjóri og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru í heimsókn hjá danska hernum í febrúar á þessu ári var þeim m.a. boðið að skoða útbúnað sprengjueyðingarsveitar danska landhersins. Við það tækifæri var upplýst að fyrirhugað væri að endurnýja hann seinna á árinu. Í framhaldi af því ákvað danski herinn að gefa Landhelgisgæslunni þann búnað sem verið var að skipta út.

Vélmennin, sem eru af gerðinni HOBO, eru smíðuð í Írlandi. Hægt er að fjarstýra þeim í leit að sprengjum og við eyðingu þeirra og draga þannig úr hættu á að sprengjusérfræðingar slasist eða látist við skyldustörf. Helstu kostir vélmennanna, umfram það vélmenni sem Landhelgisgæslan á fyrir, eru að hægt er að nota þau til fjölbreytilegri verkefna og með skjótvirkari hætti. Þau eru einnig talsvert aflmeiri. Vélmennin eru flutt milli staða með bifreiðum sem eru sérútbúnar í þeim tilgangi. Í þeim eru margs konar tæki sem sprengjusérfræðingar nota, t.d. myndavélar og vopn til sprengjueyðingar.

Það er mikil framför fyrir Landhelgisgæsluna að fá þennan búnað og er mikilsvert framlag til öryggismála á Íslandi.

Fjórir fulltrúar danska hersins verða hér á landi næstu daga til að kenna sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar á búnaðinn og þjálfa þá í notkun hans,“ segir í frétt Landhelgisgæslunnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NISSAN MICRA
Nissan Micra GX/LX. Nýskr. 1/1999, ekinn 115 þ.km, bensín, 5...
NÚ ER RÉTTI TÍMINN FYRIR TRJÁKLIPPINGAR
Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar...
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
 
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...