Dettifoss og varðskip halda sjó austur af landinu
Dettifoss og Týr í ólgusjó austur af landinu í dag. mynd/Landhelgisgæslan
Stýrisbúnaður Dettifoss, skips Eimskipafélagsins, bilaði um klukkan 20 í gærkvöldi þegar skipið var um 8 sjómílur austur af Eystrahorni en hluti stýrisblaðs skipsins virðist hafa dottið af.
Varðskipið Týr kom að Dettifossi um kl. 22 í gærkvöldi. Taug var komið í Dettifoss en hún slitnaði kl. 23:37. Um tvöleytið var aftur búið að koma taug í Dettifoss og hafist handa við að draga hann í átt til Eskifjarðar. Illa gekk að snúa Dettifossi vegna þyngdar skipsins. Um kl. 1:51 slitnaði línan á milli skipanna.
Klukkan 4:30 óskaði Týr eftir aðstoð varðskipsins Ægis en þá hafði tekist að koma taug í Dettifoss að nýju en ekkert gekk að snúa skipinu. Ægir var kominn á svæðið kl. 10 í morgun. Tý tókst að draga Dettifoss af stað og kl. 14 voru skipin á leið til Reyðarfjarðar á 2,5 sjómílna hraða. Tý gekk erfiðlega að stjórna Dettifossi og þess vegna var taug sett á milli varðskipsins Ægis og varðskipsins Týs. Það tókst kl. 15:40. Tuttugu mínútum síðar hafði taugin milli Dettifoss og Týs slitnað. Skipin voru þá stödd 28 sjómílur austur af Breiðdalsvík.
Þrettán manns eru í áhöfn Dettifoss og höfðust þeir allir vel við að sögn Halldórs V. Guðmundssonar skipstjóra á Dettifossi þrátt fyrir leiðinda velting. Dettifoss, sem er 14.664 brúttótonn að stærð, er fulllestaður af gámum. Skipið var á leið frá Reykjavík til Eskifjarðar þegar bilunin varð. Samkvæmt upplýsingum frá Eimskip verður unnið að könnun á skemmdum á Dettifossi á Eskifirði og að henni lokinni verður tekin ákvörðun um hvar viðgerð verður framkvæmd.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 30. janúar 2005, Innlent Enn beðið með að koma taug í Dettifoss
- Sunnudagur, 30. janúar 2005, Innlent Varðskipin og Dettifoss komin í mynni Reyðarfjarðar
- Laugardagur, 29. janúar 2005, Innlent Veður hamlar för Týs með Dettifoss í togi til Eskifjarðar
- Sunnudagur, 30. janúar 2005, Innlent Ægir og Týr komnir með Dettifoss í tog
- Föstudagur, 28. janúar 2005, Innlent Dettifoss stýrisvana austur af Eystrahorni
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju





































