Enn deilt hart á Alþingi um stuðning við Íraksstríð

Íraksmálið var enn til umræðu á Alþingi í dag.

Íraksmálið var enn til umræðu á Alþingi í dag. mbl.is

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu forvígismenn ríkisstjórnarinnar harðlega á Alþingi í dag fyrir það hvernig staðið var að ákvörðun um að styðja hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna og fleiri þjóða í Írak. Voru stjórnvöld m.a. sökuð um að hafa veitt Bandaríkjunum frjáls afnot af nafni Íslands í pólitísku skyni. Stjórnarliðar hvöttu hins vegar stjórnarandstæðinga til að fara að snúa sér að öðrum málum.

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, hóf umræðuna við upphaf þingfundar eftir hádegið, og sagði að ýmis ummæli og upplýsingar hefðu komið fram að undanförnu um aðdraganda ákvörðunarinnar um stuðning við hernaðaraðgerðirnar í Írak, sem kölluðu á skýringar. Sagði Össur, að stjórnarandstaðan hefði lagt ríka áherslu á að fram fari sérstök rannsókn til að grafast fyrir um aðdraganda þeirrar ákvörðunar sem tveir forustumenn ríkisstjórnarinnar tóku. Því hafi verið haldið fram að þrýstingur frá Bandaríkjamönnum og varnarhagsmunir hafi blandast inn í þetta og í viðtali sem Stöð 2 tók við Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, í gær, hafi þetta verið staðfest.

Sagði Össur að Halldór hefði í viðtalinu sagt að í því hefði falist veruleg stefnubreyting ef hafnað hefði verið ósk um stuðning frá vinaþjóð til 60 ára. Þetta sagði Össur vera rangt hjá Halldóri því Ísland hefði með þessari ákvörðun stutt einhliða og ólögmætt innrásarstríð og ákvörðun um stuðninginn hefði verið tekin án lögformlegs samráðs við utanríkismálanefnd Alþingis.

Spurði Össur, hvort það væri rétt lýsing, sem höfð hefði verið eftir í viðtalinu við Halldór, að sendiherra Bandaríkjanna hefði komið í forsætisráðuneytið á meðan ríkisstjórnin var á fundi um Íraksmálið. Forsætisráðherra hefði farið fram á gang og rætt við þann embættismann sem við sendiherrann ræddi og komið á ný inn á fundinn án þess að láta þess getið.

Halldór Ásgrímsson sagði, að enn á ný kæmi Össur upp á Alþingi til að vekja á sér athygli og þráspyrja um þetta mál. Hann hefði hins vegar upplýst að hann myndi ekki á hvað hann hlustaði í gærkvöldi. Sagðist Halldór aldrei hafa sagt í viðtalinu, að bein tengsl hefðu verið á milli varnarhagsmuna og umræddrar ákvörðunar, og spurði Össur hvort hann vildi ekki lesa viðtalið áður en hann kæmi næst upp í ræðustól.

Halldór sagði, að svo virtist sem verkaskipting forustu Samfylkingarinnar væri sú, að formaðurinn sæi um fortíðina og varaformaðurinn um framtíðina. Sagðist Halldór hafa verið síðustu daga á ferð úti á landi og sagði að fólkið í landinu hefði engan áhuga á þessu máli og engan áhuga á því sem Össur væri að tala um heldur hefði það áhuga á framtíðinni. Sagðist Halldór síðan vilja biðja þingmanninn að hætta þessari vitleysu.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, sagði að þeir Halldór, George W. Bush og Tony Blair ættu það sameiginlegt að vilja ekki tala mikið um þetta mál. Sagði Steingrímur, að vinnubrögðin, sem lýst hefði verið í umræddu viðtali væru svo ófagleg og niðurlægjandi fyrir íslenska þjóð að það væri með ólíkindum. Ákvörðunin hefði verið tekin á hlaupum, skilaboð hefðu borist frammi á gangi í stjórnarráðinu gegnum embættismann frá sendiherranum sem drap þar niður fæti og allt væri samkvæmt minni.

Sagði Steingrímur, að Halldór hefði staðfest, að ekki væri stafkrókur bókaður um málið, um það hefði aldrei verið tekin formleg ákvörðun á fundum, engin formleg tilkynning hefði verið gefin út heldur pukrast með málið að ósk bandarísku ríkisstjórnarinnar. Þá hefði nafn Íslands birst á lista yfir stuðningsþjóðir þegar Bandaríkjamönnum hentaði. „Bandaríkjunum voru gefin frjáls afnot af nafni Íslands. Hvílík niðurlæging fyrir sjálfstæða þjóð," sagði Steingrímur.

Geir H. Haarde, starfandi utanríkisráðherra, sagði að umræðan bæri keim af illvígum innanflokksátökum í Samfylkingunni. Auðvitað lægi fyrir, að rétt hafi verið að málunum staðið, þeir ráðherrar sem til þess voru bærir hefðu tekið umrædda ákvörðun og þeir hefðu haft fullan stuðning á bak við sig í ríkisstjórn og þingflokkum. Að veita yfirflugsréttindi og lendingarleyfi og lýsa yfir stuðningi við uppbyggingu í Írak væri í fullu samræmi við það sem áður hefði verið gert.

Geir sagði, að það væri athyglisvert að stjórnarandstaðan gæti með engum hætti horft fram á veginn til uppbyggingar í Írak en horfði stöðugt í baksýnisspegilinn til 18.-20. mars árið 2003. Þá léti hún eins og samvinna í varnarmálum skipti engu máli. Spurði Geir, hvort það lægi ekki fyrir að samstarf þessara þjóða hefði mikla þýðingu þegar brugðist væri við óskum frá Bandaríkjamönnum.

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins sagði, að sá sorglegi atburður hefði gerst að forsætisráðherra hefði ítrekað orðið uppvís að því að fara með ósannindi varðandi það að Íslendingar undir leiðsögn Framsóknarflokks og með stuðningi Sjálfstæðisflokks skyldu hafa farið fram með ófrið á hendur öðrum þjóðum. Sagði Sigurjón að Halldór hefði sagði að þetta hefði ekki verið gert með tilliti til varnarhagsmuna en það hefði hann síðan viðurkennt í gær. Þá hefði Halldór haldið því fram, að breytt afstaða Frakka hafi valdið stefnubreytingu íslensku ríkisstjórnarinnar, en nú væri komið í ljós að það væri ekki rétt. Þá hefði forsætisráðherra ítrekað sagt að ákvörðunin hafi verið rædd í þingflokkum, ríkisstjórn og utanríkismálanefnd en nú hefði komið í ljós að ávörðunin var ekki rædd, heldur aðeins Íraksmálið.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, sagði að skoðun á fortíðinni væri mikilvæg. Halldór segði að fólkið í landinu ræddi ekki Íraksmálið en svo mikið væri víst, að fólkið í landinu væri andvígt þeirri ákvörðun sem tekin var og teldi hana vera siðferðislega ranga.

Ingibjörg Sólrún sagðist ekki telja að þessi umræða væri árás á forsætisráðherra heldur væri verið að ræða hvernig staðið væri að ákvörðunum sem fælu í sér stefnubreytingu í utanríkismálum. Í því fælist pólitísk gagnrýni og hún ætti að eiga sér stað á Alþingi. Sagði Ingibjörg Sólrún, að einhliða valdbeiting væri í andstöðu við sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Bush-kenningin svonefnda væri að Bandaríkin hafi ein rétt á að grípa til aðgerða og undir það hefðu íslensk stjórnvöld tekið með því að ljá máls á einhliða árás á fullvalda ríki. Sagði Ingibjörg Sólrún, að í þessu fælist stefnubreyting og rof á þeirri sátt sem verið hefði um utanríkismál á Alþingi í 60 ár.

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði það rangt að halda því fram að Íslendingar hafi verið að gerast aðilar að stríði. Bandaríkjamenn hefðu beðið um pólitískan stuðning, sem væri kjarni málsins. Ísland hefði veitt eðlilegan pólitískan stuðning við stríð sem hafði það að markmiði að hrinda einum mesta harðstjóra allra tíma. Sagði Einar að margbúið væri að draga þessi atriði fram og stjórnarandstaðan þyrlaði upp moldviðri um mál, sem löngu væri búið að útskýra, og væri nú í eðlilegri umfjöllun í utanríkismálanefnd þingsins.

Össur Skarphéðinsson sagði að loks væri verið að upplýsa þetta mál og draga með töngum hægt og hægt út úr ríkisstjórninni hvernig í því liggi. Spurði Össur hvers vegna menn væru ekki tilbúnir til að samþykkja að aflétta trúnaði af fundargerðum utanríkismálanefndar og tillögu stjórnarandstöðunnar um að láta rannsaka öll tildrög þessa máls. Þá spurði Össur, hvort það væri ekki óeðlilegt að þegar ríkisstjórnin væri að ræða mál Íraks sé sendiherra Bandaríkjanna handan við þilið. Og forsætisráðherra hefði ekki sagt ríkisstjórninni frá þeirri ákvörðun sem tekin hafði verið. Spurði Össur, hvort skýringin á því hefði verið sú, að einhverjir ráðherrar, t.d. Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, hefðu ekki verið sammála þessari ákvörðun og einnig hvort fleiri þingmenn Framsóknarflokksins hafi ekki heldur verið sammála þessu; hvort ríkisstjórnin hafi í raun ekki haft þingmeirihluta fyrir ákvörðuninni.

Halldór Ásgrímsson sagði, að það hefði komið skýrt fram, að umrædd ákvörðun hefði verið tekin eftir ríkisstjórnarfund. Vegna ummæla Ingibjargar Sólrúnar um stefnubreytingu, þá sagði Halldór að það lægi alveg ljóst fyrir, varðandi árásir vestrænna herja á Kosovo-hérað í Júgóslavíu, að öryggisráð SÞ hafi ekki samþykkt þær. Sagðist Halldór ekki muna betur en að Samfylkingin hafi stutt á sínum tíma þegar íslensk stjórnvöld veittu þeim aðgerðum stuðning.

Sagði Halldór að lokum, að ljóst væri að gamla Alþýðubandalagið hefði náð yfirhöndinni í Samfylkingunni í utanríkismálum. Áður hefði verið hægt að treysta því að Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur stæðu saman í öryggis- og varnarmálum en það væri allt breytt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Leiðiskrossar til sölu
Mjög fallegir leiðiskrossar til sölu galvanseraðir og pólýhúðaðir. Upplýsingar í...
ÁRSREIKNINGAR LÖGAÐILA
Ársreikningar lögaðila (ehf.) Færsla á bókhaldi, ...
M. BENZ C 240
M. Benz C 240 4matic Árg. 2003, ekinn 175 þ. km, bensín, sj...
Til sölu kerrur
Til sölu þrjár kerrur, þar af ein lokuð farangurskerra. Smíðaðar úr ryðfríu stál...
 
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...